
Ný viðbót við tölvuleikinn Overwatch er komin út og Ísland leikur þar stórt hlutverk. Með Season 5: A Grim Doctrine bætast meðal annars við ný spilanleg persóna og nýtt kort sem nefnist Watchpoint: Grímsvötn og er staðsett á Íslandi.
Kortið er svokallað Escort kort og er það fyrsta nýja kortið af þeirri gerð sem hefur bæst við leikinn frá útgáfu Overwatch 2. Watchpoint: Grímsvötn er staðsett í Vatnajökulsþjóðgarði og sækir nafn sitt og umhverfi til eldstöðvarinnar Grímsvatna.
Í söguheimi Overwatch var stöðin við Grímsvötn áður rekin af Overwatch samtökunum og gegndi meðal annars hlutverki fangelsis fyrir hættulega vopnatækni. Þar voru vistaðir nokkrir af hættulegustu glæpamönnum heims.
Samhliða nýja kortinu bætist Support persónan Doctrine, Tamuka Yeukai, við leikinn. Samkvæmt sögu leiksins var hann fangelsaður í Grímsvötnum af Ana Amari og Freja Skov en síðar frelsaður af Doomfist og félögum hans.
Doomfist á einnig tengingu við staðinn enda var hann sjálfur vistaður í fangelsinu um tíma.
Íslenska eldfjallasvæðið verður því ekki aðeins bakgrunnur nýs korts heldur mikilvægur hluti af sögu nýjustu viðbótar tölvuleiksins.
