
Ragnar Þór Ingólfsson, félags og húsnæðismálaráðherra, mælti í fyrradag fyrir breytingum á húsaleigulögum sem ríkisstjórnin segir ætlað að auka húsnæðisöryggi leigjenda, draga úr vægi verðtryggingar og auka fyrirsjáanleika um þróun húsnæðiskostnaðar.
Rétt er þó að hafa í huga að um er að ræða markmið og mat ríkisstjórnarinnar á áhrifum frumvarpsins. Enn á eftir að koma í ljós hvort breytingarnar muni í framkvæmd skila þeim árangri sem stjórnvöld boða og hvort þær muni raunverulega draga úr hækkunum á leigumarkaði.
„Frumvarpið er lagt fram á grundvelli stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnarinnar um að styrkja stöðu leigjenda og setja heimilin í forgang,“ sagði Ragnar Þór í framsöguræðu sinni á Alþingi.
Ráðherra sagði breytingarnar fela í sér lögfestingu á því sem hann kallaði trausta og vel útfærða leigubremsu á íslenskum húsnæðismarkaði.
Að sögn ráðherra á leigubremsan að stöðva sjálfvirkar mánaðarlegar hækkanir og veita leigjendum aukið öryggi og fyrirsjáanleika. Þá fullyrða stjórnvöld að breytingarnar muni verja heimilin gegn stjórnlausum hækkunum og draga úr óöryggi á leigumarkaði.
Hvort þær fyrirætlanir gangi eftir verður hins vegar ekki ljóst fyrr en breytingarnar hafa tekið gildi og reynsla er komin á framkvæmd þeirra.
Ekki einhugur um málið
Einn þeim sem var ósammála Ragnari er Tómas Þór Þórðarson, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, sem gagnrýndi ríkisstjórnina harðlega í ræðu undir liðnum störf þingsins á Alþingi í gær. Sakaði hann stjórnarliða, og sérstaklega Samfylkinguna, um að beina athyglinni að Sjálfstæðisflokknum í stað þess að líta í eigin barm.
Tómas Þór vísaði í umræðu um fyrirhugaða leigubremsu og sagði Sjálfstæðisflokkinn ekki þurfa að hafa áhyggjur af henni þar sem flokkurinn byggi „leigulaust í höfðinu“ á ríkisstjórninni og þá sérstaklega Samfylkingunni.
„Þetta eru verk fólks sem er algerlega ófært um að líta í eigin barm, fólk sem sagði eitt fyrir kosningar en gerir annað núna, allt þvert á það sem var lofað. Ég skil að þetta særi stoltið, ég átta mig fyllilega á því, en að taka það út á stjórnarandstöðunni með skítkasti og stundum hreinu bulli er lítilmannlegt.“
Þingmaðurinn gagnrýndi jafnframt efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar og sagði hana hafa staðið fyrir umfangsmiklum skattahækkunum sem hefðu áhrif á efnahagslífið. Hann vísaði meðal annars til bankaskatts, veiðigjalda og svokallaðs baðlónaskatts.
Tómas Þór sagði ríkisstjórnina þurfa að standa með ákvörðunum sínum og taka ábyrgð á áhrifum þeirra. Að hans sögn hefðu auknar álögur á einstaklinga og fyrirtæki áhrif á meðal annars vexti, verðbólgu og atvinnuleysi.
Hann sagði þjóðina nú standa frammi fyrir ögurstund í kjaramálum og lauk ræðu sinni á því að segja að réði ríkisstjórnin ekki við verkefnið ætti hún að viðurkenna það. Góð byrjun væri að hans mati að stjórnarliðar litu inn á við.
