
Lífeyrissjóður bænda mun sameinast Frjálsa lífeyrissjóðnum að fullu samkvæmt samningi sem stjórnir sjóðanna undirrituðu í maí síðastliðnum. Innköllun vegna sameiningarinnar birtist í Lögbirtingablaðinu í dag.
Stjórnir Lífeyrissjóðs bænda og Frjálsa lífeyrissjóðsins samþykktu sameininguna með samningi 19. maí síðastliðinn. Hún var síðan staðfest á ársfundi Lífeyrissjóðs bænda 19. júní.
Sameiningin felur í sér að Lífeyrissjóður bænda sameinast að fullu Frjálsa lífeyrissjóðnum. Samruninn er nú til umfjöllunar hjá Samkeppniseftirlitinu.
Samkvæmt samningi sjóðanna tekur Frjálsi lífeyrissjóðurinn yfir allar eignir og lífeyrisskuldbindingar Lífeyrissjóðs bænda, að teknu tilliti til mats á stöðu þeirra 30. júní 2026.
Í innkölluninni er jafnframt skorað á lánardrottna Lífeyrissjóðs bænda að lýsa kröfum sínum á hendur sjóðnum innan tveggja mánaða frá fyrri birtingu hennar.
Fram kemur að innköllunin hafi sömu áhrif og innköllun krafna við gjaldþrotaskipti samkvæmt lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.
Kröfulýsingar skulu sendar á skrifstofu þess sem annast innköllunina að Skólavörðustíg 25 í Reykjavík.
