
Töluvert var um verkefni hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt. Meðal annars voru þrír handteknir vegna fíkniefnamisferlis, tilkynnt um tvær líkamsárásir og nokkrir ökumenn stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum.
Í miðborg Reykjavíkur voru þrír einstaklingar handteknir vegna fíkniefnamisferlis. Þeir voru vistaðir í fangageymslu og er málið til rannsóknar. Þá var tilkynnt um líkamsárás í miðborginni þar sem minniháttar meiðsli urðu. Gerandinn er ókunnur og málið er í rannsókn.
Ökumaður var einnig stöðvaður í miðborginni fyrir að tala í farsíma án handfrjáls búnaðar og var málið afgreitt með sekt.
Lögreglu barst jafnframt tilkynning um umferðarslys þar sem bifreið hafði verið ekið á ljósastaur og umferðarmerki. Ökumaðurinn var grunaður um ölvun við akstur og vistaður í fangageymslu.
Í Kópavogi var tilkynnt um líkamsárás. Einn maður var handtekinn og vistaður í fangageymslu en annar var fluttur á bráðamóttöku til aðhlynningar.
Þrír ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Þeir voru látnir lausir að lokinni blóðsýnatöku.
Þá var ökumaður stöðvaður í Hafnarfirði á 117 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 80 kílómetrar á klukkustund. Annar ökumaður var stöðvaður á sama svæði fyrir að aka gegn rauðu ljósi.
Loks var ökumaður stöðvaður í Kópavogi og kom í ljós við athugun lögreglu að hann hafði verið sviptur ökuréttindum. Málið var afgreitt með sekt.
