
María Rut Kristinsdóttir, þingmaður Viðreisnar, gagnrýndi minnihlutann harðlega í störfum þingsins á Alþingi í dag og sagði stjórnarandstöðuna virðast eiga erfitt með að beina athyglinni að öðru en Evrópumálum.
María Rut sagði málflutning minni hlutans stundum gefa til kynna að ríkisstjórnin gæti aðeins sinnt einu viðfangsefni í einu. Að hennar mati segði það þó meira um stjórnarandstöðuna en ríkisstjórnina.
„Það er sannarlega hægt að gera fleiri en einn hlut í einu. Það er það sem þessi ríkisstjórn hefur verið að gera með góðum árangri,“ sagði María Rut.
Hún sagði „einhvers konar þráhyggju“ hafa ríkt hjá minnihlutanum um að ríkisstjórnin hefði aðeins einblínt á Evrópusambandið undanfarna mánuði. Á sama tíma hefði ríkisstjórnin meðal annars lokið samgönguáætlun, komið á fót innviðafélagi, afgreitt tvo rammapakka í rammaáætlun, lagt fram hallalaus fjárlög og sett heildarlög um vindorku.
Þá hefði einnig verið lokið þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald viðræðna við Evrópusambandið.
Rubio á Íslandi á meðan Evrópa rædd í þinginu
María Rut vísaði einnig til opinberrar heimsóknar Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, til Íslands. Hún sagði að á sama tíma og ráðherrar ættu samtöl við Rubio hefðu þingmenn minnihlutans sakað ríkisstjórnina um Evrópuþráhyggju í umræðum um bókun 35.
Hún sagði sömu gagnrýni hafa náð til efnahagsmála og kjarasamninga. Á meðan þingmenn ræddu bókun 35 klukkustundum saman hefðu forsætisráðherra og fjármálaráðherra unnið að lausn á þeirri stöðu sem komin var upp í kjaradeilum vinnumarkaðarins.
María Rut lauk máli sínu með því að beina spjótunum að stjórnarandstöðunni.
„Hefur minnihlutinn ekki athyglisspönn fyrir neitt nema Evrópu?“
