
Rússnesk heilbrigðisyfirvöld segja enga hættu á farsótt eftir dularfullt dauðsfall 28 ára rannsóknarstofustarfsmanns í Síberíu. Konan starfaði á rannsóknarstofnun sem fæst við rannsóknir á plágu og öðrum hættulegum sýklum.
Rússneski miðillinn People of Baikal greindi frá því á föstudag að konan hefði látist af völdum plágu. Grunur léki á að hún hefði smitast þegar tilraunaglas brotnaði við störf hennar á rannsóknarstofu í Irkutsk héraði.
Rússnesk stjórnvöld hafa hins vegar gert lítið úr þeim upplýsingum. Þau segja konuna hafa látist úr lungnabólgu og að nákvæm dánarorsök hafi ekki verið staðfest.
Rospotrebnadzor, stofnun sem fer með heilbrigðiseftirlit í Rússlandi, segir ástandið í Irkutsk héraði rólegt og enga farsóttarhættu vera fyrir almenning. Umfangsmikil rannsókn hafi ekki leitt í ljós neyðarástand og rannsóknarstofan hafi fylgt viðeigandi reglum við meðhöndlun hættulegra sýkla.
Samkvæmt stofnuninni hafa meira en 90 prósent þeirra sem voru í tengslum við konuna lokið læknisfræðilegu eftirliti. Engin veikindi tengd smitsjúkdómum hafi greinst og nærri fimm þúsund rannsóknir hafi ekki sýnt fram á hættulega sýkla.
Yfirvöld segja konuna jafnframt hafa verið bólusetta og með ónæmi gegn þeim hættulegu sýkingum sem hún vann með.
Þrátt fyrir að segja enga farsóttarhættu fyrir hendi hafa yfirvöld gripið til sérstakra sóttvarnaráðstafana. Rospotrebnadzor segir þær varúðarráðstöfun í samræmi við rússnesk sóttvarnalög.
Málið hefur vakið athygli utan Rússlands. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin, Bandaríkin og Evrópusambandið hafa kallað eftir auknu gagnsæi um dauðsfallið og aðdraganda þess.
Rússnesk yfirvöld segjast hafa upplýst Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina um málið í samræmi við alþjóðlegar heilbrigðisreglur.