
Héraðsdómur Austurlands hefur dæmt karlmann í tveggja mánaða fangelsi fyrir líkamsárás á sambýliskonu sína og barnsmóður á heimili þeirra í upphafi árs. Maðurinn beitti konuna meðal annars kverkataki. Frá þessu segir Austurfrétt.
Í dóminum kemur fram að maðurinn hafi slegið konuna í andlitið og ýtt henni niður á gólf. Hann hafi síðan tekið hana kverkataki, hrint henni og sparkað í höfuð hennar áður en hann hélt henni niðri.
Málið var upphaflega að hluta ákært sem stórfelld líkamsárás, meðal annars með hliðsjón af aðferðum, tækjum eða þeim áverkum sem konan hlaut. Maðurinn neitaði þeim hluta ákærunnar. Í dóminum kemur fram að ekki hafi legið fyrir nægilega skýrar upplýsingar um hversu alvarleg árásin var til að unnt væri að byggja á þeim hluta ákærunnar.
Fallið var frá þeim hluta ákærunnar eftir að málið hafði verið þingfest. Maðurinn játaði þá skýlaust þá verknaðarlýsingu sem eftir stóð.
Við ákvörðun refsingar var litið til játningar mannsins og þess að hann ætti hreint sakavottorð. Hins vegar var einnig horft til þess að árásin beindist að andliti og hálsi konunnar.
Maðurinn var dæmdur í tveggja mánaða fangelsi, en fullnustu refsingarinnar var frestað og hún skilorðsbundin til tveggja ára.
Þá var honum gert að greiða verjanda sínum rúmlega 400 þúsund krónur í málskostnað.
