1
Pólitík

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“

2
Fólk

Selja glæsilegt einbýli með sundlaug í kjallaranum

3
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

4
Fólk

Sjaldgæft raðhús til sölu í einni fjölmennustu götu landsins

5
Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn

6
Innlent

Fékk aldrei lyklana en þarf samt að greiða hundruð þúsunda

7
Innlent

Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi

8
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

9
Innlent

Ók eins og brjálæðingur í Hvalfjarðarsveit

10
Innlent

Tók lögregluna upp í laumi og kvartaði svo yfir framkomunni

Til baka

Sverrir Bergmann vill stoppa leyfislausa tónlist í pólitískum áróðri

„Að hægt sé að velja lag í snjallsíma staðfestir ekki að nota megi það í kostaðri auglýsingu“

Sverrir Bergman
Sverrir Bergmann
Mynd: Óskar Þormarsson

Sverrir Bergmann Magnússon, varaþingmaður Samfylkingarinnar, vakti athygli á notkun tónlistar í pólitískum áróðri á samfélagsmiðlum í ræðu sinni undir liðnum störf þingsins á Alþingi í dag. Hann kallaði eftir því að stjórnmálaflokkar gættu betur að réttindum höfunda og flytjenda þegar tónlist er notuð í kynningarefni.

Sverrir vísaði meðal annars til aðdraganda nýafstaðinnar þjóðaratkvæðagreiðslu og sagði þar hafa mátt heyra tónlist notaða til að styðja pólitísk skilaboð. Hann velti því upp hvort tilskilinna leyfa hefði verið aflað og hvort rætt hefði verið við höfunda og eigendur viðkomandi upptakna.

Hann benti á að samkvæmt leiðbeiningum STEFs væri gerður greinarmunur á réttinum að tónverkinu sjálfu og réttinum að tiltekinni upptöku. Leyfi fyrir öðru fæli því ekki sjálfkrafa í sér leyfi fyrir hinu.

„Að hægt sé að velja lag í snjallsíma staðfestir ekki að nota megi það í kostaðri auglýsingu,“ sagði Sverrir.

Getur gefið til kynna pólitískan stuðning

Sverrir sagði einnig mikilvægt að hafa í huga hvaða skilaboð notkun þekktra laga eða radda flytjenda gæti sent almenningi. Þegar tónlist væri tengd ákveðnum pólitískum málstað gæti skapast sú mynd að listamaðurinn styddi málstaðinn.

„Við eigum að virða það að fólk ráði sjálft hvort og hvernig það tengist pólitískri baráttu,“ sagði hann.

Þingmaðurinn sagði tónlist hafa mikið áhrifavald enda gæti hún vakið tilfinningar, skapað stemningu og aukið kraft pólitískra skilaboða. Á bak við tónlistina lægi hins vegar vinna og sköpun fólks sem ætti rétt á því að réttindi þess væru virt og greitt væri fyrir notkun verka þess.

Hann sagði marga sem störfuðu í skapandi greinum eiga erfitt með að lifa af vinnu sinni þrátt fyrir mikilvægt framlag þeirra til íslenskrar tungu og menningar.

Vill sameiginlegar leiðbeiningar

Sverrir hvatti stjórnmálaflokka og þingmenn til að tryggja að nauðsynleg leyfi væru fyrir hendi áður en kynningarefni með tónlist væri birt. Hann lagði jafnframt til að stjórnmálaflokkarnir mótuðu sameiginlegar leiðbeiningar með STEF og fulltrúum flytjenda og útgefenda um leyfisöflun og greiðslur.

„Við sem setjum öðrum reglur eigum að ganga á undan með góðu fordæmi. Virðing fyrir íslenskri menningu verður að sjást í því hvernig við komum fram við fólkið sem skapar hana,“ sagði Sverrir að lokum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Sigríður ræðst gegn Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael
Pólitík

Sigríður ræðst gegn Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael

Athygli vekur að Sigríður tók ekki fram að síðan þá hafi her Ísrael drepið rúmlega 74 þúsund Palestínumenn
María Rut segir stjórnarandstöðuna heltekna af Evrópu
Pólitík

María Rut segir stjórnarandstöðuna heltekna af Evrópu

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö
Heimur

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens
Heimur

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens

Dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir árás á sambýliskonu sína
Innlent

Dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir árás á sambýliskonu sína

Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni
Myndir
Fólk

Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni

Grein sálfræðings um að læra að opna sig
Skoðun

Dávur í Dali

Grein sálfræðings um að læra að opna sig

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall
Heimur

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl
Heimur

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl

Konan úr kynlífsmyndbandi Kevin Hart gæti borið vitni gegn honum
Heimur

Konan úr kynlífsmyndbandi Kevin Hart gæti borið vitni gegn honum

Andrew Tate sagður hafa haft gróft klámefni með hesti og áli í fórum sínum
Heimur

Andrew Tate sagður hafa haft gróft klámefni með hesti og áli í fórum sínum

Flugáhöfn þurfti að stöðva kynferðislega iðju í háloftunum
Myndband
Heimur

Flugáhöfn þurfti að stöðva kynferðislega iðju í háloftunum

Norðurslóðir í nýrri heimsmynd
Innlent

Norðurslóðir í nýrri heimsmynd

Pólitík

Sigríður ræðst gegn Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael
Pólitík

Sigríður ræðst gegn Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael

Athygli vekur að Sigríður tók ekki fram að síðan þá hafi her Ísrael drepið rúmlega 74 þúsund Palestínumenn
Bergþór líkir skorti á samráði við að senda landsmönnum fingurinn
Pólitík

Bergþór líkir skorti á samráði við að senda landsmönnum fingurinn

María Rut segir stjórnarandstöðuna heltekna af Evrópu
Pólitík

María Rut segir stjórnarandstöðuna heltekna af Evrópu

Sverrir Bergmann vill stoppa leyfislausa tónlist í pólitískum áróðri
Pólitík

Sverrir Bergmann vill stoppa leyfislausa tónlist í pólitískum áróðri

Tómas Þór sakar ríkisstjórnina um „skítkast“ og svikin loforð
Pólitík

Tómas Þór sakar ríkisstjórnina um „skítkast“ og svikin loforð

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“
Pólitík

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“

Loka auglýsingu