
Bob Thwaites, 79 ára Breti, hefur leitað til dómstóla eftir að hjólhýsi sem hafði verið heimili hans í 35 ár var rifið á meðan hann var að heiman.
Thwaites hafði búið í hjólhýsinu við Broadness Creek í Kent frá árinu 1991. Hann flutti þangað eftir að hjónaband hans fór út um þúfur og kom sér með tímanum upp lífi utan hefðbundinna veitukerfa.
Þann 6. maí síðastliðinn fór Thwaites út að versla en þegar hann sneri aftur hafði hjólhýsið verið rifið. Fyrirtækið Land Logical, sem hafði eignast félagið sem á landsvæðið, stóð að niðurrifinu.
Thwaites krefst nú bráðabirgðalögbanns sem myndi gera honum kleift að snúa aftur á svæðið með nýtt hjólhýsi á meðan deilt er um rétt hans til landsins.
Lögmenn hans halda því fram að hann kunni að hafa öðlast réttindi yfir landinu vegna langvarandi umráða. Fyrir dómi voru meðal annars lagðar fram loftmyndir frá árunum 1999 til 2025 sem sagðar eru sýna hjólhýsið á sama stað.
Eigendur landsins mótmæla kröfunni og benda meðal annars á að hvorki hafi verið fyrir hendi skipulagsleyfi né skráning vegna fasteignagjalda.
Dómarinn í málinu frestaði úrskurði til 15. október.
