
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar skemmdarverk á þremur bifreiðum í Vesturbæ Reykjavíkur sem tilkynnt voru í gær og fyrradag.
Samkvæmt tilkynningu lögreglu voru bifreiðarnar kyrrstæðar í stæðum við Flyðrugranda, Hagamel og Keilugranda þegar þær voru rispaðar. Talið er að lykill eða einhvers konar áhald hafi verið notað við skemmdarverkin og segir lögregla að töluvert tjón hafi orðið á bifreiðunum.
Ekki liggur fyrir hvort einn eða fleiri hafi verið að verki.
Lögreglan óskar eftir upplýsingum frá fólki sem kann að hafa orðið vart við grunsamlegar mannaferðir á umræddum stöðum. Þá eru íbúar og aðrir sem áttu leið um svæðið hvattir til að kanna hvort þeir hafi undir höndum myndefni sem gæti nýst við rannsókn málsins.
Sérstaklega er óskað eftir upptökum úr eftirlitsmyndavélum eða myndavélum í bifreiðum.
