1
Fólk

Sjaldgæft raðhús til sölu í einni fjölmennustu götu landsins

2
Innlent

Ók eins og brjálæðingur í Hvalfjarðarsveit

3
Fólk

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október

4
Pólitík

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael

5
Heimur

Flugáhöfn þurfti að stöðva kynferðislega iðju í háloftunum

6
Pólitík

Tómas Þór sakar ríkisstjórnina um „skítkast“ og svikin loforð

7
Fólk

Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni

8
Innlent

Almenningur fékk ekki að vita hvernig alvarleg sakamál enduðu

9
Peningar

Bændur kveðja sinn eigin lífeyrissjóð

10
Innlent

Kvörtun vegna erlendra ökuskírteina fékk ekki brautargengi

Til baka

Handtekinn fyrir fjóra mismunandi glæpi

Lögregla
Lögreglumaður að störfum
Mynd: Víkingur

Mikil ölvun og ólæti voru á kappleik milli tveggja framhaldsskóla á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi. Átta lögreglumenn þurftu að vera á vettvangi þegar mest gekk á til að koma skikki á hópinn.

Samkvæmt dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fékk einn einstaklingur flösku í höfuðið á meðan á kappleiknum stóð. Áverkar hans reyndust minniháttar.

Mikil ölvun var meðal viðstaddra og kom til óláta milli fylkinga. Blysum var kastað og lentu þau á fólki sem var nærstatt. Þá fengu einhverjir kjaftshögg og aðrir voru hræktir á.

Enginn var vistaður í fangageymslu vegna ólátanna og þegar dagbókin var rituð höfðu engar formlegar kærur verið lagðar fram.

Grunaður um sölu fíkniefna og peningaþvætti

Nokkuð var um önnur verkefni hjá lögreglu í gærkvöldi og nótt. Maður var handtekinn og vistaður í fangageymslu vegna rannsóknar á eignaspjöllum, meintri sölu fíkniefna, vopnalagabroti og peningaþvætti.

Lögreglu og slökkviliði var jafnframt gert viðvart um eld í sameign fjölbýlishúss. Þar hafði kviknað í hlaupahjóli og viðbragðsaðilar fóru á vettvang.

Nokkrir ökumenn komu einnig við sögu lögreglu. Tveir voru kærðir fyrir hraðakstur, annar mældist á 110 kílómetra hraða á klukkustund þar sem hámarkshraði er 80 og hinn á 111 kílómetra hraða við sömu hámarkshraðatakmörkun.

Ökumaður var handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og reyndist auk þess vera með of marga farþega í bifreiðinni.

Annar einstaklingur var vistaður vegna rannsóknar á umferðaróhappi, akstri undir áhrifum fíkniefna og vörslu fíkniefna. Þá voru tveir ökumenn til viðbótar handteknir vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna, annar þeirra eftir miðnætti.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Íbúum fjölgar hlutfallslega mest í minnsta sveitarfélaginu
Innlent

Íbúum fjölgar hlutfallslega mest í minnsta sveitarfélaginu

Íbúum fækkar í 19 sveitarfélögum af 61.
Alex Ferguson var einum degi frá því að taka við Arsenal
Sport

Alex Ferguson var einum degi frá því að taka við Arsenal

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október
Fólk

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael
Pólitík

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael

María Rut segir stjórnarandstöðuna heltekna af Evrópu
Pólitík

María Rut segir stjórnarandstöðuna heltekna af Evrópu

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö
Heimur

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö

Sverrir Bergmann vill stoppa leyfislausa tónlist í pólitískum áróðri
Pólitík

Sverrir Bergmann vill stoppa leyfislausa tónlist í pólitískum áróðri

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens
Heimur

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens

Dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir árás á sambýliskonu sína
Innlent

Dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir árás á sambýliskonu sína

Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni
Myndir
Fólk

Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni

Grein sálfræðings um að læra að opna sig
Skoðun

Dávur í Dali

Grein sálfræðings um að læra að opna sig

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall
Heimur

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl
Heimur

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl

Innlent

Handtekinn fyrir fjóra mismunandi glæpi
Innlent

Handtekinn fyrir fjóra mismunandi glæpi

Kvörtun vegna erlendra ökuskírteina fékk ekki brautargengi
Innlent

Kvörtun vegna erlendra ökuskírteina fékk ekki brautargengi

Íbúum fjölgar hlutfallslega mest í minnsta sveitarfélaginu
Innlent

Íbúum fjölgar hlutfallslega mest í minnsta sveitarfélaginu

Dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir árás á sambýliskonu sína
Innlent

Dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir árás á sambýliskonu sína

Norðurslóðir í nýrri heimsmynd
Innlent

Norðurslóðir í nýrri heimsmynd

Ók eins og brjálæðingur í Hvalfjarðarsveit
Innlent

Ók eins og brjálæðingur í Hvalfjarðarsveit

Loka auglýsingu