
Íbúum hefur fjölgað í 42 af 61 sveitarfélagi landsins frá 1. desember 2025 til 1. október 2026, samkvæmt nýjum tölum frá Þjóðskrá. Íbúum fækkaði á sama tíma í 19 sveitarfélögum. BB.is segir frá málinu.
Mesta hlutfallslega fjölgunin varð í Árneshreppi þar sem íbúum fjölgaði um 11,5 prósent, eða um sjö manns. Kaldrananeshreppur kemur næstur en þar fjölgaði íbúum um 9,8 prósent.
Í Reykjavík fjölgaði íbúum um 278 á tímabilinu. Í Hafnarfirði nam fjölgunin 682 íbúum og á Akureyri fjölgaði íbúum um 198.
Í Reykjanesbæ fækkaði íbúum hins vegar um 306 á tímabilinu, en í Sveitarfélaginu Árborg fjölgaði þeim um 302.
Á Vestfjörðum fjölgaði íbúum samtals um 46 frá 1. desember 2025 til 1. október 2026, samkvæmt tölum Þjóðskrár.
