1
Fólk

Sjaldgæft raðhús til sölu í einni fjölmennustu götu landsins

2
Innlent

Ók eins og brjálæðingur í Hvalfjarðarsveit

3
Fólk

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október

4
Pólitík

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael

5
Heimur

Flugáhöfn þurfti að stöðva kynferðislega iðju í háloftunum

6
Fólk

Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni

7
Pólitík

Tómas Þór sakar ríkisstjórnina um „skítkast“ og svikin loforð

8
Innlent

Almenningur fékk ekki að vita hvernig alvarleg sakamál enduðu

9
Peningar

Bændur kveðja sinn eigin lífeyrissjóð

10
Innlent

Kvörtun vegna erlendra ökuskírteina fékk ekki brautargengi

Til baka

Rasískir skemmdarvargar herja á bíla í Vesturbænum

„Svona var aðkoman fyrir utan bílskúrinn minn við Flyðrugranda í dag“

vesturbær
Vesturbær Reykjavíkur
Mynd: Reykjavíkurborg

Fjöldi íbúa í Vesturbæ Reykjavíkur segist hafa orðið fyrir eignaspjöllum á bílum sínum á undanförnum sólarhringum. Bílar hafa meðal annars verið rispaðir við Flyðrugranda, Keilugranda, Hagamel og Kaplaskjólsveg og hafa nokkrir íbúar birt ljósmyndir af skemmdunum.

Kristján Ingi Einarsson vakti athygli á málinu í hverfishópi Vesturbæjar á Facebook eftir að hafa komið að skemmdum fyrir utan bílskúr sinn við Flyðrugranda en hakakross hafðu verið skorinn í bíl Kristjáns.

„Kæru Vesturbæingar. Svona var aðkoman fyrir utan bílskúrinn minn við Flyðrugranda í dag. Langaði að kanna hvort einhver hafi orðið vitni að þessu eða hvort fleiri hafi lent í svipuðu?“ skrifaði Kristján.

Hakakross
Mynd: Kristjan Ingi Einarsson/Facebook

Viðbrögðin létu ekki á sér standa og lýstu fjölmargir íbúar sambærilegum atvikum.

„Það var líka verið að rispa bíl hjá okkur á Keilugrandanum í gær,“ skrifaði Kristín Helga Karlsdóttir.

Theodóra Kristjánsdóttir sagðist einnig hafa orðið fyrir barðinu á skemmdarvörgum.

„Okkar var rispaður í nótt á Hagamel,“ skrifaði hún og birti mynd af skemmdunum. Hún benti jafnframt öðrum íbúum á að hægt væri að tilkynna eignaspjöll til lögreglu í gegnum Ísland.is.

Elín Jóna Gunnarsdóttir lýsti sambærilegu atviki við Keilugranda.

„Húddið á bílnum mínum var rispað í nótt. Ég er á Keilugranda,“ skrifaði hún og birti mynd.

rispur
Mynd: Elín Jóna Gunnarsdóttir/Facebook

Auður Ásta Baldursdóttir sagði sömu sögu: „Sama hjá okkur, stór rispa aftan á bílnum okkar á Keilugranda.“

Fleiri götur virðast hafa orðið fyrir barðinu á skemmdarvörgum. Atli Jónasson skrifaði: „Lenti líka í þessu á Kaplaskjólsvegi. Fræðum börnin.“

Ólöf Rut Stefánsdóttir birti jafnframt mynd af skemmdum á bíl sínum og sagði þær hafa orðið fyrir utan Krónuna á Granda. Ester Bergmann birti einnig mynd af skemmdum á bíl og sagði atvikið hafa átt sér stað fyrir utan Fiskislóð.

Marsibil P. Benjamínsdóttir sagði eina bifreið hafa verið skemmda við Keilugranda 1 til 3 og velti því upp hvort sami einstaklingur gæti staðið að baki fleiri tilvikum.

„Ein bifreið skemmd við Keilugranda 1-3. Hugsanlega sami aðili,“ skrifaði hún.

Fullyrða að um TikTok trend sé að ræða

Nokkrir þátttakendur í umræðunni töldu að skemmdirnar kynnu að tengjast hegðun ungmenna og jafnvel svokallaðri TikTok áskorun. Engar staðfestar upplýsingar liggja þó fyrir um að atvikin tengist TikTok eða að börn eða unglingar standi að baki þeim.

„Lentum í þessu líka - húddið allt rispað á Hagamel. Frétti í dag að þetta er eitthvað trend á TikTok, krakkar að rispa bíla til skemmtunar og setja myndbönd af því inn. Góð ástæða til þess að tala við börnin sín um skaðsemi þess,“ skrifaði einn í Vesturbænum.

Stella Sæmundsdóttir tók í sama streng og taldi mögulegt að um TikTok áskorun væri að ræða. Sú fullyrðing hefur ekki verið staðfest.

Svava S. Steinars sagði sambærileg atvik jafnframt hafa átt sér stað utan Vesturbæjar.

„Þetta er líka að gerast í Hlíðahverfi. Unglingar hafa náðst á myndavélum,“ skrifaði hún.

Hjalti Sigurðarson tók undir það og sagði: „Náðu myndum í Hlíðunum af gerandanum.“

Gyða Jónsdóttir greindi einnig frá skemmdum í Hlíðunum og sagði að Tesla bifreið hefði verið rispuð í Stórholti fyrr í vikunni.

Hakakrossar vekja óhug

Umræðan snerist ekki eingöngu um rispur á lakki. Ragnhildur Hólmgeirsdóttir sagði að hakakrossar hefðu sést í hverfinu.

„Það lenti einhver í því í vor að það voru teiknaðir hakakrossar í rykið á bílrúðu og ég hef tekið eftir hakakrossum á ljósastaurum í hverfinu. Virkilega ógeðslegt,“ skrifaði hún.

Loai Sal Eh sagðist hafa lent í sambærilegu atviki fyrir tveimur mánuðum og að tákn sem líktist hakakrossi hefði verið teiknað á bíl hans.

Hrönn Kristinsdóttir sagði skemmdirnar óþolandi en bætti við: „Rispur algerlega óþolandi, en hakakrossar frekar óhugnanlegt.“

Ingvar Jónsson lýsti annars konar atviki og sagðist hafa orðið fyrir því að skotið væri á bifreið hans með paintball byssu þegar hann ók um Vesturbæinn.

„Það var skotið á bílinn minn með paintball byssu í dag þegar ég keyrði í gegnum gengjasvæðið ykkar í dag,“ skrifaði hann og hvatti foreldra til að ræða við börn sín.

Fjöldi íbúa lýsti áhyggjum af stöðunni og kallaði eftir viðbrögðum. Alfdís Axelsdóttir velti því meðal annars upp hvort tímabært væri að boða til íbúafundar.

„Er ekki kominn tími til að hafa íbúafund og ræða þetta af alvöru?“ spurði hún.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Vilja heimila hótelbyggingu við Grensásveg
Innlent

Vilja heimila hótelbyggingu við Grensásveg

Samhliða þessu hefur borgin auglýst breytingu á deiliskipulagi Norðlingaholts
Nettókostnaður loðdýraræktar á Íslandi 981 milljón króna
Innlent

Nettókostnaður loðdýraræktar á Íslandi 981 milljón króna

Greiddi ekki af láninu og nú vill Arion fá 84 milljónir
Peningar

Greiddi ekki af láninu og nú vill Arion fá 84 milljónir

Róbert Wessman fagnaði afmælinu með ástvinum
Myndir
Fólk

Róbert Wessman fagnaði afmælinu með ástvinum

Pawel snýr umræðunni að ESB eftir yfirlýsingu Rubios
Pólitík

Pawel snýr umræðunni að ESB eftir yfirlýsingu Rubios

Selja eina sérkennilegustu jörð landsins með jarðhýsum, reykkofa og þurrkhjalli
Myndir
Fólk

Selja eina sérkennilegustu jörð landsins með jarðhýsum, reykkofa og þurrkhjalli

Síðasta kjörtímabil Ingu
Slúður

Síðasta kjörtímabil Ingu

Handtekinn fyrir fjóra mismunandi glæpi
Innlent

Handtekinn fyrir fjóra mismunandi glæpi

Íbúum fjölgar hlutfallslega mest í minnsta sveitarfélaginu
Innlent

Íbúum fjölgar hlutfallslega mest í minnsta sveitarfélaginu

Alex Ferguson var einum degi frá því að taka við Arsenal
Sport

Alex Ferguson var einum degi frá því að taka við Arsenal

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október
Fólk

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael
Pólitík

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael

María Rut segir stjórnarandstöðuna heltekna af Evrópu
Pólitík

María Rut segir stjórnarandstöðuna heltekna af Evrópu

Innlent

Vilja heimila hótelbyggingu við Grensásveg
Innlent

Vilja heimila hótelbyggingu við Grensásveg

Samhliða þessu hefur borgin auglýst breytingu á deiliskipulagi Norðlingaholts
Dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir árás á sambýliskonu sína
Innlent

Dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir árás á sambýliskonu sína

Nettókostnaður loðdýraræktar á Íslandi 981 milljón króna
Innlent

Nettókostnaður loðdýraræktar á Íslandi 981 milljón króna

Rasískir skemmdarvargar herja á bíla í Vesturbænum
Myndir
Innlent

Rasískir skemmdarvargar herja á bíla í Vesturbænum

Handtekinn fyrir fjóra mismunandi glæpi
Innlent

Handtekinn fyrir fjóra mismunandi glæpi

Íbúum fjölgar hlutfallslega mest í minnsta sveitarfélaginu
Innlent

Íbúum fjölgar hlutfallslega mest í minnsta sveitarfélaginu

Loka auglýsingu