
Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar og formaður utanríkismálanefndar Alþingis, segir að fríverslunarsamningur Íslands við Bandaríkin sé ekki lengur raunhæfur kostur eftir nýleg ummæli Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna.
Pawel gerir umræðuna að umtalsefni í Facebook-færslu þar sem hann rekur hvernig hugmyndin um fríverslunarsamning við Bandaríkin hafi þróast á undanförnum vikum.
Hann rifjar meðal annars upp að Sjálfstæðisflokkurinn hafi farið í ferð til Bandaríkjanna og í kjölfarið lagt til fríverslunarsamning við Bandaríkin. Þá hafi Lilja Alfreðsdóttir, formaður Framsóknar einnig lagt til slíkan samning í viðtali á Útvarpi Sögu.
Pawel bendir einnig á ummæli Ólafs Ragnars Grímssonar í þætti á Brotkastinu í lok ágúst, þar sem hann sagði að það ætti að vera „tiltölulega auðvelt“ að ná slíkum samningi við Bandaríkin.
Síðan hafi Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna komið til Íslands.
„Rubio [kom] til Íslands og lýsti því yfir að „tími fríverslunarsamninga væri liðinn“,“ skrifar Pawel.
Rubio sagði á blaðamannafundi í Reykjavík að tímabil fríverslunarsamninga væri að hans mati liðið og að frekar ætti að horfa til tvíhliða viðskiptasamninga. Hann tók þó fram að þetta væri almenn afstaða Bandaríkjanna en beindist ekki sérstaklega að Íslandi.
Pawel segir yfirlýsingu Rubios ekki koma sér á óvart.
„Það á ekki að koma neinum á óvart sem hefur lesið nýja þjóðaröryggisstefnu Bandaríkjanna og yfirlýsingar ráðamanna þar í landi,“ skrifar hann.
Þá dregur Pawel fram það sem hann telur vera ákveðna mótsögn í umræðunni um Bandaríkin annars vegar og Evrópusambandið hins vegar.
„Nei sinnar voru duglegir að draga fram áratugagamlar yfirlýsingar frá ESB og 10–15 ára gömul skrif í bæklingum til að sannfæra íslenska kjósendur um að það væri um „ekkert að semja“ við Evrópusambandið,“ segir Pawel.
Hann heldur áfram:
„Ef þær yfirlýsingar dugðu sem rök að þeirra mati, þá ættu þessar yfirlýsingar utanríkisráðherra Bandaríkjanna að loka umræðunni um víðtækan fríverslunarsamning vestur.“
Hvað næst?
Þrátt fyrir gagnrýni sína á hugmyndina um fríverslunarsamning segir Pawel að mikilvægt sé að halda áfram að rækta viðskiptasamband Íslands við Bandaríkin.
„Það er sjálfsagt að rækta viðskiptatengsl við Bandaríkin, en fríverslunarsamningur er einfaldlega ekki á borðinu núna,“ skrifar hann.
Hann segir jafnframt að Íslendingar eigi að leita allra leiða til að bæta stöðu íslenskra fyrirtækja og neytenda.
„Almennt þá eigum við auðvitað að skoða allar leiðir til að tryggja okkar framleiðendum betri markaðsaðgang og íslenskum neytendum lægra verð.“
Pawel telur að ein leið til þess sé að beina sjónum að Evrópusambandinu.
„Auðsóttasta leiðin til þess er að tala við aðila sem enn hafa trú á fríverslun. Einn slíkur aðili er Evrópusambandið,“ skrifar hann.
Hann bendir á að EES-samningurinn tryggi mikinn aðgang að mörkuðum beggja vegna, en að enn megi gera betur á ákveðnum sviðum.
„EES-samningurinn tryggir mikinn aðgang í báðar áttir en ekki fullan. Við getum enn gert betur þegar kemur að landbúnaðarvörum, fiski og iðnaðarvörum. Við eigum að stefna að því,“ segir Pawel.
