1
Fólk

Sjaldgæft raðhús til sölu í einni fjölmennustu götu landsins

2
Innlent

Ók eins og brjálæðingur í Hvalfjarðarsveit

3
Fólk

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október

4
Pólitík

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael

5
Heimur

Flugáhöfn þurfti að stöðva kynferðislega iðju í háloftunum

6
Fólk

Selja eina sérkennilegustu jörð landsins með jarðhýsum, reykkofa og þurrkhjalli

7
Fólk

Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni

8
Pólitík

Tómas Þór sakar ríkisstjórnina um „skítkast“ og svikin loforð

9
Innlent

Almenningur fékk ekki að vita hvernig alvarleg sakamál enduðu

10
Peningar

Bændur kveðja sinn eigin lífeyrissjóð

Til baka

Þóttist vera afleysingakennari því henni „leiddist“

Spurði krakkana hvort þau væru með marijúana og sagði einum að „grjóthalda kjafti“.

Amy Jones
Amy JonesAmy hefur verið kærð fyrir atvikið

Tuttugu og þriggja ára kona hefur verið ákærð fyrir að hafa þóst vera afleysingakennari í grunnskóla vegna þess að henni „leiddist“.

Amy Jones var ákærð fyrir fimm brot sem snúa að því að hafa útsett barn fyrir skaðlegum lýsingum og eitt brot fyrir að hafa gefið sig út fyrir að vera opinber starfsmaður sunnudaginn 4. október. Ákærurnar tengjast atviki sem átti sér stað 24. september, samkvæmt dómsgögnum.

Jones er sögð hafa kannað aðstæður við Rufus King International High School í Milwaukee viku fyrir atvikið. Hún var sjálf nemandi við skólann áður og samkvæmt kæru komst hún fram hjá öryggisvörðum með því að blandast saman við nemendahópinn, að því er Fox 6 greinir frá. Í heimsókninni heyrði hún starfsfólk ræða um fyrirtæki sem útvegaði afleysingakennara.

Þann 24. september voru átta kennarar fjarverandi og sjö afleysingakennarar voru við störf. Jones „var heppin því það vantaði einmitt afleysingakennara í eina stöðu,“ sagði skólastjórinn Doreen Badillo. Jones gaf sig þá út fyrir að vera afleysingakennari og skráði sig inn sem slíkur, samkvæmt Fox 6.

Jones fór síðan inn í kennslustofu sem annar kennari hafði undirbúið. Sá kennari var með henni í um 20 mínútur áður en hann fór.

Eftir að kennarinn fór spurði Jones nemendur hvort einhver þeirra væri með marijúana eða rafsígarettu, samkvæmt kæru málsins. Hún sagði við bekkinn að þetta væri „svo helvíti leiðinlegt og pirrandi“.

Hún er einnig sögð hafa raðað nemendum eftir kynþætti og kyni og notað kynþáttaníð og blótsyrði. Þá hafi hún sagt við einn nemanda að „grjóthalda kjafti“.

Jones er jafnframt sögð hafa gert lítið úr nemendum vegna þyngdar þeirra, kynþáttar, útlits og fjárhagsstöðu. Þá hafi hún montað sig af því að „vera með sakfellingar á sakaskrá og vera alveg sama þótt hún færi í fangelsi,“ samkvæmt kæru málsins.

Ummæli hennar „ollu öllum bekknum óþægindum“ og eftir fyrstu kennslustundina létu nemendur starfsfólk skólans vita. Badillo skólastjóri hafði samband við afleysingakennaraþjónustuna, sem staðfesti að Jones væri ekki starfsmaður hennar, samkvæmt kærunni.

Lögregla kom á skólann og fylgdi Jones út úr húsinu. Hún ræddi við lögreglumenn eftir atvikið og er sögð hafa sagt að hún hefði þóst vera kennarinn vegna þess að henni „leiddist“. Jones sagði einnig að hún hataði börn og hefði einfaldlega viljað „gera eitthvað ruglað“.

Badillo sendi í kjölfarið frá sér yfirlýsingu til nemenda og foreldra skólans þar sem staðfest var að lögreglumenn Milwaukee-lögreglunnar sem starfa sem tengiliðir við skólann og jafnréttisstjóri skólahverfisins hefðu verið látnir vita.

Badillo staðfesti einnig að skólahverfið rannsakaði málið sjálfstætt, samhliða rannsókn lögreglunnar í Milwaukee.

Jones mætti fyrir dómstól 6. október. Næst þar hún að mæta fyrir dómi 20. október þegar frumathugun málsins fer fram.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Ungur Akureyringur geymdi milljónaágóða af fíkniefnasölu
Innlent

Ungur Akureyringur geymdi milljónaágóða af fíkniefnasölu

Við ákvörðun refsingar var meðal annars horft til ungs aldurs hans
Toyota á Íslandi innkallar vinsælan rafbíl vegna slysahættu
Innlent

Toyota á Íslandi innkallar vinsælan rafbíl vegna slysahættu

Vilja heimila hótelbyggingu við Grensásveg
Innlent

Vilja heimila hótelbyggingu við Grensásveg

Nettókostnaður loðdýraræktar á Íslandi 981 milljón króna
Innlent

Nettókostnaður loðdýraræktar á Íslandi 981 milljón króna

Greiddi ekki af láninu og nú vill Arion fá 84 milljónir
Peningar

Greiddi ekki af láninu og nú vill Arion fá 84 milljónir

Róbert Wessman fagnaði afmælinu með ástvinum
Myndir
Fólk

Róbert Wessman fagnaði afmælinu með ástvinum

Rasískir skemmdarvargar herja á bíla í Vesturbænum
Myndir
Innlent

Rasískir skemmdarvargar herja á bíla í Vesturbænum

Pawel snýr umræðunni að ESB eftir yfirlýsingu Rubios
Pólitík

Pawel snýr umræðunni að ESB eftir yfirlýsingu Rubios

Selja eina sérkennilegustu jörð landsins með jarðhýsum, reykkofa og þurrkhjalli
Myndir
Fólk

Selja eina sérkennilegustu jörð landsins með jarðhýsum, reykkofa og þurrkhjalli

Síðasta kjörtímabil Ingu
Slúður

Síðasta kjörtímabil Ingu

Handtekinn fyrir fjóra mismunandi glæpi
Innlent

Handtekinn fyrir fjóra mismunandi glæpi

Íbúum fjölgar hlutfallslega mest í minnsta sveitarfélaginu
Innlent

Íbúum fjölgar hlutfallslega mest í minnsta sveitarfélaginu

Alex Ferguson var einum degi frá því að taka við Arsenal
Sport

Alex Ferguson var einum degi frá því að taka við Arsenal

Heimur

Þóttist vera afleysingakennari því henni „leiddist“
Heimur

Þóttist vera afleysingakennari því henni „leiddist“

Spurði krakkana hvort þau væru með marijúana og sagði einum að „grjóthalda kjafti“.
Konan úr kynlífsmyndbandi Kevin Hart gæti borið vitni gegn honum
Heimur

Konan úr kynlífsmyndbandi Kevin Hart gæti borið vitni gegn honum

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö
Heimur

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens
Heimur

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall
Heimur

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl
Heimur

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl

Loka auglýsingu