1
Fólk

Sjaldgæft raðhús til sölu í einni fjölmennustu götu landsins

2
Innlent

Ók eins og brjálæðingur í Hvalfjarðarsveit

3
Fólk

Selja eina sérkennilegustu jörð landsins með jarðhýsum, reykkofa og þurrkhjalli

4
Fólk

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október

5
Pólitík

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael

6
Innlent

Ungur Akureyringur geymdi milljónaágóða af fíkniefnasölu

7
Heimur

Flugáhöfn þurfti að stöðva kynferðislega iðju í háloftunum

8
Innlent

Toyota á Íslandi innkallar vinsælan rafbíl vegna slysahættu

9
Peningar

Greiddi ekki af láninu og nú vill Arion fá 84 milljónir

10
Fólk

Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni

Til baka

Hrottar herjuðu á hurð Hilmars

„Þetta var gert með einhverju áhaldi sem viðkomandi tók síðan með sér á flóttanum,“

Hurð Mölvuð 2
Fjölmargir íbúar brugðust við færslunni og nokkrir lýstu sambærilegum atvikum
Mynd: Hilmar Guðmannsson/Facebook

Íbúi í Norðlingaholti segir óþekktan einstakling hafa brotið rúðu í útidyrahurð heimilis síns á miðvikudagskvöld og síðan hlaupið á brott. Atvikið hefur verið tilkynnt til lögreglu.

Hilmar Guðmannsson greinir frá atvikinu í Facebook-hópi fyrir íbúa Norðlingaholts og birti jafnframt ljósmyndir af skemmdunum.

„Kl 19:20 heyrðist ógurlegur hávaði úr forstofunni. Einhver braut rúðuna í útidyrahurðinni okkar og hljóp í burtu,“ skrifar Hilmar.

Hann segir engan stein hafa fundist við hurðina og telur því að áhald hafi verið notað til að brjóta rúðuna.

„Það var enginn steinn fyrir innan eða utan hurðina svo þetta var gert með einhverju áhaldi sem viðkomandi tók síðan með sér á flóttanum,“ segir hann og biðlar til nágranna um upplýsingar.

„Ef þið heyrið eitthvað eða vitið eitthvað hver er að gera svona lagað endilega talið við viðkomandi. Þessum aðila líður illa.“

Fjölmargir íbúar brugðust við færslunni og nokkrir lýstu sambærilegum atvikum. Einn þeirra sagðist hafa orðið fyrir ítrekuðu ónæði, meðal annars eggjakasti í bíla og spörkum í útidyr, og annar íbúi lýsti því að nýlega hefði verið „hamast á húninum og sparkað í hurðina“.

Athygli vekur ummæli Kolla Þrastarsonar undir færslunni. Hann skrifar:

„Bara það sem koma skal. Með nýjum menningum koma nýjir siðir.“

Ekki liggur fyrir hvað Kolli á nákvæmlega við með orðunum eða hvort hann búi yfir einhverjum upplýsingum um hver hafi staðið að skemmdarverkinu sem ekki koma fram í umræðunni. Engar upplýsingar í færslunni sjálfri gefa til kynna hver gerandinn var eða bakgrunn hans.

Fleiri íbúar velta því upp að um einhvers konar dyraat eða samfélagsmiðlaáskorun meðal ungmenna geti verið að ræða. Þórhildur Þórhallsdóttir skrifar til að mynda: „Þetta er eitthvað krakka tiktok trend.“

Guðrún Tinna Valdimarsdóttir segist jafnframt þekkja til sambærilegs atviks á Vatnsenda í fyrra þar sem ungir strákar hafi barið og sparkað í hurð þar til rúða brotnaði.

Málið er nú komið á borð lögreglu að sögn Hilmars.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Kylfa, ketamín og kannabis fundust í bíl Breiðhyltings
Innlent

Kylfa, ketamín og kannabis fundust í bíl Breiðhyltings

Var gripinn glóðvolgur í Garðabæ
Ríkisstjórnin sökuð um að svíkja skriflegt samkomulag
Pólitík

Ríkisstjórnin sökuð um að svíkja skriflegt samkomulag

Heimili ellilífeyrisþega rifið meðan hann verslaði
Heimur

Heimili ellilífeyrisþega rifið meðan hann verslaði

Dánarorsök systranna þriggja í Brighton opinberuð
Heimur

Dánarorsök systranna þriggja í Brighton opinberuð

Uppþornað og vel varðveitt lík fannst á Tenerife
Heimur

Uppþornað og vel varðveitt lík fannst á Tenerife

Lögreglan leitar vitna eftir skemmdarverk á þremur bílum
Innlent

Lögreglan leitar vitna eftir skemmdarverk á þremur bílum

Þóttist vera afleysingakennari því henni „leiddist“
Heimur

Þóttist vera afleysingakennari því henni „leiddist“

Ungur Akureyringur geymdi milljónaágóða af fíkniefnasölu
Innlent

Ungur Akureyringur geymdi milljónaágóða af fíkniefnasölu

Toyota á Íslandi innkallar vinsælan rafbíl vegna slysahættu
Innlent

Toyota á Íslandi innkallar vinsælan rafbíl vegna slysahættu

Vilja heimila hótelbyggingu við Grensásveg
Innlent

Vilja heimila hótelbyggingu við Grensásveg

Nettókostnaður loðdýraræktar á Íslandi 981 milljón króna
Innlent

Nettókostnaður loðdýraræktar á Íslandi 981 milljón króna

Greiddi ekki af láninu og nú vill Arion fá 84 milljónir
Peningar

Greiddi ekki af láninu og nú vill Arion fá 84 milljónir

Róbert Wessman fagnaði afmælinu með ástvinum
Myndir
Fólk

Róbert Wessman fagnaði afmælinu með ástvinum

Innlent

Kylfa, ketamín og kannabis fundust í bíl Breiðhyltings
Innlent

Kylfa, ketamín og kannabis fundust í bíl Breiðhyltings

Var gripinn glóðvolgur í Garðabæ
Vilja heimila hótelbyggingu við Grensásveg
Innlent

Vilja heimila hótelbyggingu við Grensásveg

Hrottar herjuðu á hurð Hilmars
Innlent

Hrottar herjuðu á hurð Hilmars

Lögreglan leitar vitna eftir skemmdarverk á þremur bílum
Innlent

Lögreglan leitar vitna eftir skemmdarverk á þremur bílum

Ungur Akureyringur geymdi milljónaágóða af fíkniefnasölu
Innlent

Ungur Akureyringur geymdi milljónaágóða af fíkniefnasölu

Toyota á Íslandi innkallar vinsælan rafbíl vegna slysahættu
Innlent

Toyota á Íslandi innkallar vinsælan rafbíl vegna slysahættu

Loka auglýsingu