
Breiðhyltingur á fertugsaldri hefur verið dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir umferðarlagabrot, vopnalagabrot og fíkniefnalagabrot. Dómur féll í Héraðsdómi Reykjavíkur á þriðjudag.
Málið á rætur að rekja til 8. nóvember í fyrra þegar lögregla stöðvaði akstur mannsins í Garðabæ. Hann reyndist hafa ekið undir áhrifum áfengis. Þá var hann ekki með ökuskírteini meðferðis.
Við leit í bifreiðinni fann lögregla jafnframt kylfu og talsvert magn fíkniefna. Þar á meðal voru rúm 511 grömm af kannabisblönduðu efni, tæp 15 grömm af maríhúana og rúm þrjú grömm af ketamíni. Einnig fundust fjórir millilítrar af kannabisblönduðum vökva og tólf stykki af kannabisblönduðu efni.
Samkvæmt ákæru voru fíkniefnin ætluð til sölu og dreifingar. Breiðhyltingurinn játaði brot sín skýlaust fyrir dómi og hafði ekki áður hlotið refsingu. Játning hans var metin honum til málsbóta við ákvörðun refsingar.
Maðurinn var dæmdur í þriggja mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, og sviptur ökurétti í tíu mánuði. Kylfan og fíkniefnin voru jafnframt gerð upptæk.
Honum var einnig gert að greiða rúmar 221 þúsund krónur í málsvarnarþóknun og annan sakarkostnað.