
Umboðsmaður Alþingis hefur lokið máli sem varðaði stöðu ferjusamgangna milli Vestmannaeyja og fastalandsins. Málinu lauk með bréfi 30. september síðastliðinn og var niðurstaðan birt á vef umboðsmanns í byrjun október.
Kvörtun frá ónefndum einstaklingi barst embættinu 27. september þar sem óskað var eftir því að umboðsmaður tæki stöðu ferjusamgangna til skoðunar. Í erindinu var meðal annars bent á að ferjan væri eina raunhæfa vegasamband íbúa Vestmannaeyja við grunnvegakerfi landsins en nyti þrátt fyrir það ekki sömu lagalegu stöðu og þjóðvegir.
Umboðsmaður taldi hins vegar ekki skilyrði til að taka kvörtunina til frekari meðferðar. Ástæðan var sú að erindið varðaði ekki tiltekna ákvörðun eða athöfn stjórnvalds sem beindist sérstaklega að þeim sem kvartaði eða einstaklingsbundnum réttindum hans.
Þá var bent á að starfssvið umboðsmanns næði almennt ekki til þess að meta hvernig til hefði tekist með löggjöf Alþingis. Í fyrri framkvæmd embættisins hefði jafnframt verið lagt til grundvallar að ferjur teldust ekki þjóðvegir samkvæmt vegalögum.
Erindinu var þó haldið til haga sem ábendingu um mögulegt frumkvæðismál. Umboðsmaður getur tekið slík mál til sérstakrar athugunar telji embættið tilefni til þess.
