1
Fólk

Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll

2
Pólitík

Afsögn Guðmundar Inga kveikti hörð orðaskipti Kristrúnar og Sigmundar

3
Fólk

Árás Hamas á Ísrael hafði mikil áhrif á hjónaband Ólafs og Dorritar

4
Innlent

Hafnfirsk móðir höfðar mál til að fá faðerni barns staðfest

5
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

6
Innlent

Einföld tilraun sýnir hvað getur leynst í eldhústuskunni

7
Heimur

Borgaði ókunnugu fólki fyrir að reima skóna sína

8
Heimur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva

9
Fólk

Sjö merki um að þú sért með réttu manneskjunni

10
Fólk

Millie Bobby Brown á Íslandi

Til baka

Fjölskylda systranna sem drukknuðu í Brighton opnar sig

„Samfélagsmiðlar kasta skugga á allt það sem þær stóðu fyrir.“

Systurnar
Systurnar þrjárGervigreindarmyndin sem fjölskyldan bjó til upp úr ljósmyndum af þeim systrum
Mynd: Lögreglan í Sussex

Fjölskylda þriggja systra sem fundust látnar undan ströndum Brighton hefur stigið fram opinberlega og biður fólk á samfélagsmiðlum um að hætta vangaveltum og samsæriskenningum um dauða þeirra.

Systurnar Jane Adetoro, 36 ára, Christina Walters, 32 ára, og Rebecca Walters, 31 árs, fundust í sjónum við Brighton-strönd eftir að lögreglu barst tilkynning vegna áhyggna af velferð þeirra um klukkan 5:45 að morgni 13. maí.

Mikil rannsókn var sett af stað eftir að lík systranna, sem voru frá Uxbridge-hverfinu í Lundúnum, fundust í sjónum.

Frænka þeirra, Ajike Adetoro, segir fjölskylduna aldrei hafa vitað að systurnar hygðust ferðast til Brighton þennan morgun. Hún lýsir þeim sem nánum systrum sem hafi verið rólegar og ekki stundað skemmtanalíf.

„Mest truflandi fyrir okkur eru samsæriskenningarnar,“ sagði hún í samtali við The Times. „Við höfum heyrt fólk komast að þeirri niðurstöðu að þetta hafi verið rasísk árás, morð eða að þær hafi verið að djamma. Þetta eru fáránlegt. Allt þetta er rangt.“

Fjölskyldan segir systurnar hafa verið mjög nánar og gert allt saman.

„Þær voru hamingjusamar stelpur,“ sagði Ajike. „Þær fluttu úr húsi föður síns fyrir tveimur árum en sendu honum skilaboð að minnsta kosti tvisvar á dag.“

Lögreglan í Sussex gat borið kennsl á systurnar eftir að lykilkippa sem fannst hjá þeim var rakin til íbúðar þeirra í Uxbridge.

Tengja dauðann við móður þeirra

Fjölskyldan hefur velt því fyrir sér hvort systurnar hafi farið til Brighton til að minnast móður sinnar sem drukknaði í Birmingham fyrir sextán árum.

Ajike segir fjölskylduna ekki vilja geta sér til um ástæður ferðarinnar, en að dauði systranna hafi komið öllum í opna skjöldu.

Hún segir jafnframt að netumræða um málið hafi reynst fjölskyldunni sérstaklega erfið, meðal annars eftir að gervigreindarmynd af systrunum fór í dreifingu. Fjölskyldan hafi búið myndina til úr eldri ljósmyndum þar sem engin nýleg mynd hafi verið til af þeim saman.

„Við vildum bara að gervigreindin setti þær saman á fallegan hátt,“ sagði hún. „Ég hef þurft að hætta að lesa þetta.“

„Þær drukku ekki og fóru aldrei á skemmtistaði“

Ajike hvatti fólk til að hætta að dreifa kenningum á samfélagsmiðlum og muna þess í stað eftir systrunum fyrir það sem þær stóðu fyrir.

„Það er engin samúð sýnd gagnvart stelpunum þremur eða minningu þeirra,“ sagði hún. „Samfélagsmiðlar kasta skugga á allt það sem þær stóðu fyrir.“

Hún sagði systurnar hvorki hafa drukkið áfengi né reykt og að þær hefðu aldrei farið á skemmtistaði.

„Þær voru allur heimurinn fyrir föður þeirra. Nú þarf hann að skipuleggja jarðarför fyrir allar þrjár,“ sagði hún.

Faðir systranna, Joseph Adetoro, hafði áður minnst dætra sinna með hlýjum orðum.

„Engin orð geta lýst sársaukanum við að missa þrjár dætur á besta aldri,“ sagði hann. „Jane, Christina og Becky voru meira en dætur fyrir mig; þær voru gleði mín, styrkur minn og ljósið sem fyllti fjölskylduna okkar ást og hamingju.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Óvissa ríkir um mögulegt pestarsmit í Irkutsk-héraði
Heimur

Óvissa ríkir um mögulegt pestarsmit í Irkutsk-héraði

Talsmaður Rússlandsforseta biður Rússa að hlusta ekki á sögusagnir
Stefán má loksins gefa blóð aftur
Fólk

Stefán má loksins gefa blóð aftur

Mannfall og miklar skemmdir í drónaárás á Moskvu-hérað
Heimur

Mannfall og miklar skemmdir í drónaárás á Moskvu-hérað

Erlend kona fékk skilorð eftir alvarlegt slys undir Eyjafjöllum
Innlent

Erlend kona fékk skilorð eftir alvarlegt slys undir Eyjafjöllum

Selja glæsilegt einbýli með sundlaug í kjallaranum
Myndir
Fólk

Selja glæsilegt einbýli með sundlaug í kjallaranum

Fluttur á bráðamóttöku eftir slys í Árbænum
Innlent

Fluttur á bráðamóttöku eftir slys í Árbænum

Herflugvél með 32 manns innanborðs hrapar í Nígeríu
Heimur

Herflugvél með 32 manns innanborðs hrapar í Nígeríu

Atlantsolía aldrei grætt meira
Peningar

Atlantsolía aldrei grætt meira

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja
Heimur

Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja

Heimur

Óvissa ríkir um mögulegt pestarsmit í Irkutsk-héraði
Heimur

Óvissa ríkir um mögulegt pestarsmit í Irkutsk-héraði

Talsmaður Rússlandsforseta biður Rússa að hlusta ekki á sögusagnir
Kynþáttahatari gripinn glóðvolgur
Myndband
Heimur

Kynþáttahatari gripinn glóðvolgur

Mannfall og miklar skemmdir í drónaárás á Moskvu-hérað
Heimur

Mannfall og miklar skemmdir í drónaárás á Moskvu-hérað

Herflugvél með 32 manns innanborðs hrapar í Nígeríu
Heimur

Herflugvél með 32 manns innanborðs hrapar í Nígeríu

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja
Heimur

Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja

Loka auglýsingu