
Erlendur ríkisborgari hefur verið dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi eftir að fjöldi stolinna muna fannst í fórum hans við tollskoðun í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Dómur féll í Héraðsdómi Reykjaness á miðvikudag. Málið á rætur að rekja til 9. nóvember 2024 þegar maðurinn hugðist fara úr landi. Við tollskoðun komu í ljós 21 munur sem reyndist vera þýfi. Að mati dómsins hlaut manninum að vera ljóst að munirnir væru stolnir.
Um var að ræða fjölbreyttan varning, meðal annars fatnað, skó, rúmföt og verkfæri. Louis Vuitton skór, Icewear peysur og hanskar, rúmföt frá Jysk og vinnufatnaður var hluti af þýfinu. Þá fundust fjölmörg verkfæri og fylgihlutir, þar á meðal borvél, skrúfvél, rafhlöður, hleðslutæki, málbönd og skrúfbitasett frá meðal annars Milwaukee, Wurth og Stanley.
Maðurinn mætti ekki þegar málið var þingfest þrátt fyrir að ákæra og fyrirkall hefðu verið birt með lögmætum hætti í Lögbirtingablaðinu í september.
Maðurinn var dæmdur í 30 daga fangelsi en fullnustu refsingarinnar frestað í tvö ár haldi hann almennt skilorð. Jafnframt var fallist á kröfu ákæruvaldsins um að allir munirnir yrðu gerðir upptækir.