
Samkeppniseftirlitið hefur hafið húsleit hjá Beru hf., móðurfyrirtæki Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar, og tilkynnt félaginu um upphaf máls vegna rannsóknar á ætluðum brotum Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar ehf. á samkeppnislögum.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kauphöll Íslands.
Rannsóknin beinist að ætluðum brotum á 11. grein samkeppnislaga nr. 44/2005, sem bannar hvers konar misnotkun eins eða fleiri fyrirtækja á markaðsráðandi stöðu.
Húsleitin er framkvæmd með heimild Héraðsdóms Reykjavíkur og er liður í rannsókn Samkeppniseftirlitsins. Að svo stöddu nær rannsóknin yfir tímabilið frá árinu 2020 til dagsins í dag.
Í tilkynningunni segir að félagið muni veita upplýsingar um framgang málsins eftir því sem tilefni verður til.
Ekki liggur fyrir á þessu stigi hverjar hinar meintu samkeppnislegu háttsemi Ölgerðarinnar eru eða hvaða niðurstaða rannsóknarinnar kann að verða.
