
Jón Viðar Jónsson, leikhús- og samfélagsrýnir, gagnrýnir harðlega afstöðu Seðlabankastjóra til hugmynda um svokallaða leigubremsu á íslenskum húsaleigumarkaði. Þetta kemur fram í færslu hans á Facebook.
Jón Viðar vísar þar til ummæla Seðlabankastjóra um að það væri „heimskulegt“ að setja leigubremsu á húsaleigumarkaðinn. Jón Viðar segir að há húsaleiga komi sérstaklega hart niður á ungum barnafjölskyldum sem hafi ekki fjárhagslegt bakland til að leita til.
„Enga vel stæða ættingja sem geta lyft undir með þeim fyrsta spölinn,“ skrifar Jón Viðar.
Hann tengir umræðuna jafnframt við fréttir frá Spáni þar sem aldraðri konu var vísað úr íbúð sem hún hafði búið í um áratugaskeið. Að sögn Jóns Viðars hafi konan ekki haft tök á að greiða þá upphæð sem nýir eigendur húsnæðisins kröfðust.
Jón Viðar segir málið vekja upp spurningar um mannúð og samfélagslega ábyrgð þegar kemur að húsnæðismálum.
„Hvað á maður að segja þegar horft er upp á annað eins mannúðarleysi, aðra eins grimmd?“ spyr hann.
Í lok færslunnar grípur Jón Viðar til tilvísunar í William Shakespeare og eina þekktustu tilvísun hans: „Something is rotten in the state of ...“
