
Tveir erlendir ríkisborgarar hafa verið dæmdir til fangelsisvistar í Héraðsdómi Reykjaness vegna brota sem tengjast fölsuðum vegabréfum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Dómarnir féllu 8. október.
Í öðru málinu var maður sakfelldur fyrir skjalafals eftir að hafa framvísað grunnfölsuðu vegabréfi frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum við landamæragæslu þegar hann kom til landsins 24. apríl síðastliðinn.
Vegabréfið var gefið út á nafn annars einstaklings og hafði samkvæmt upplýsingum í skjalinu gildistíma frá febrúar 2024 til febrúar 2029. Auk þess að vegabréfið sjálft var falsað innihélt það þrjá falsaða stimpla.
Maðurinn var dæmdur í 30 daga fangelsi.
Í hinu málinu var maður sakfelldur fyrir bæði misnotkun skjals og skjalafals. Hann hafði í desember í fyrra framvísað spænsku vegabréfi annars manns þegar hann hugðist fljúga frá Íslandi til Toronto í Kanada.
Hann reyndi aftur að komast til Toronto í apríl síðastliðnum. Þá framvísaði hann grunnfölsuðu vegabréfi sem var gefið út á hans eigið nafn. Í vegabréfinu voru jafnframt tvær falsaðar vegabréfsáritanir og tólf falsaðir stimplar.
Maðurinn var dæmdur í 60 daga fangelsi.
Hvorugur mannanna mætti við þingfestingu máls síns þrátt fyrir að ákærur og fyrirköll hefðu verið birt með lögmætum hætti.