
Tveir eftirlýstir menn voru handteknir á höfuðborgarsvæðinu í nótt eftir að lögreglu barst tilkynning um þjófnað í verslun. Mennirnir voru báðir vistaðir í fangageymslu lögreglu.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fyrir tímabilið frá klukkan 17 í gær til klukkan 5 í morgun.
Lögregla var einnig kölluð til vegna líkamsárásar þar sem maður er sagður hafa ráðist á annan mann og jafnframt valdið skemmdum á bifreið. Málið er nú til rannsóknar hjá lögreglu.
Nokkrir ökumenn voru stöðvaðir vegna hraðaksturs og voru þau mál afgreidd á vettvangi. Þá hafði lögregla afskipti af nokkrum öðrum ökumönnum vegna minniháttar umferðarlagabrota.
Einn ökumaður var stöðvaður vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Hann var látinn laus að lokinni sýnatöku.
Alls voru 60 mál skráð í kerfi lögreglu á tímabilinu. Fimm einstaklingar gistu í fangageymslum þegar dagbókin var tekin saman.
