Pokémon-meistairnn Donghun Youm segist hafa þurft að yfirgefa Baltimore Regionals mótinu eftir að líkamslykt frá öðrum keppanda varð honum um megn. Youm, sem sigraði á Pokémon Milwaukee Regional Championships árið 2023, greindi frá atvikinu á samfélagsmiðlinum X og hvatti keppendur til að huga betur að persónulegu hreinlæti.
Að sögn Youm var lyktin frá keppanda í nágrenninu svo sterk að hann og vinir hans áttu erfitt með að einbeita sér að keppninni. Þeir létu dómara á mótinu vita af ástandinu en Youm segist að lokum hafa þurft að yfirgefa svæðið og kasta upp.
Youm nafngreindi ekki keppandann sem um ræddi og ekki liggur fyrir hvort mótshaldarar gripu til einhverra aðgerða vegna málsins.
Frásögn hans vakti töluverð viðbrögð meðal annarra keppenda. Nokkrir sögðust sjálfir hafa lent í sambærilegum aðstæðum á fjölmennum mótum þar sem sterk líkamslykt hefði haft áhrif á upplifun þeirra og jafnvel einbeitingu í keppni.
Vandamálið virðist ekki bundið við Pokémon-mót. Árið 2023 var greint frá því að Super Smash Bros. Ultimate keppandinn Brian „Cosmos“ Kalu hefði þurft að verða sér úti um svitalyktareyði á móti eftir að athugasemd var gerð við líkamslykt hans. Þá hafa sambærilegar kvartanir komið upp á viðburðum tengdum safnkortaspilum.
Umræða hefur því skapast um hvort mótshaldarar eigi að setja skýrari reglur um hreinlæti og jafnvel heimila dómurum að grípa inn í þegar líkamslykt keppenda verður svo mikil að hún truflar aðra.
Skilaboð Youm til annarra keppenda voru þó einföld: Að huga að persónulegu hreinlæti áður en haldið er á fjölmennt mót.

