1
Fólk

Selja eina sérkennilegustu jörð landsins með jarðhýsum, reykkofa og þurrkhjalli

2
Innlent

Toyota á Íslandi innkallar vinsælan tengiltvinnbíl vegna slysahættu

3
Peningar

Greiddi ekki af láninu og nú vill Arion fá 84 milljónir

4
Innlent

Ungur Akureyringur geymdi milljónaágóða af fíkniefnasölu

5
Fólk

Róbert Wessman fagnaði afmælinu með ástvinum

6
Heimur

Dánarorsök systranna þriggja í Brighton opinberuð

7
Heimur

Heimili ellilífeyrisþega rifið meðan hann verslaði

8
Innlent

Hrottar herjuðu á hurð Hilmars

9
Innlent

Drap föður sinn en verður ekki svipt arfinum

10
Heimur

Uppþornað og vel varðveitt lík fannst á Tenerife

Til baka

Skúli ósáttur við Sif og segir skrifin sérkennileg og sorgleg

„Sé viðskiptaáætlun Skúla Mogensen raunverulega svo viðkvæm að hún þoli ekki breytingu á virðisaukaskatti, er yfir höfuð fótur fyrir rekstrinum?“

Sif og skúli
Skúli Mogensen og Sif Sigmarsdóttir
Mynd: Samsett

Skúli Mogensen, stofnandi Hvammsvíkur, svarar Sif Sigmarsdóttur fullum hálsi á Vísi eftir að hún gagnrýndi málflutning hans, einnig á Vísi, um fyrirhugaða hækkun virðisaukaskatts á baðlón. Hann segir skrif hennar að hluta byggja á rangfærslum og rangtúlkunum og telur hana gera lítið úr þeirri uppbyggingu sem átt hefur sér stað í íslenskri baðmenningu.

Sif fjallaði í pistli sínum um fyrirhugaða hækkun virðisaukaskatts á baðlón úr 11 prósentum í 24 prósent og orð Skúla um að hækkunin hefði áhrif á frekari uppbyggingu í Hvammsvík. Hún líkti stöðunni meðal annars við afleiðingar niðurgreiðslna bandarískra stjórnvalda á maísrækt á áttunda áratug síðustu aldar, sem urðu að hennar mati neikvæðar.

Sif velti því upp hvort rekstur sem væri háður lægra skatthlutfalli stæði nægilega traustum fótum. „Sé viðskiptaáætlun Skúla Mogensen raunverulega svo viðkvæm að hún þoli ekki breytingu á virðisaukaskatti, er yfir höfuð fótur fyrir rekstrinum?“ spurði hún.

Skattahækkunin aðeins hluti vandans

Skúli hafnar þeirri túlkun og segir skattahækkunina aðeins einn af mörgum þáttum sem hafi áhrif á ákvarðanir um frekari fjárfestingar.

„Við erum að endurskoða tímasetningu fyrirhugaðra framkvæmda í Hvammsvík fyrst og fremst vegna þeirrar miklu óvissu og óstöðugleika sem nú ríkir, bæði hér heima og erlendis,“ skrifar Skúli.

Hann nefnir meðal annars háa stýrivexti, verðbólgu, vinnudeilur, hátt eldsneytisverð og vaxandi atvinnuleysi. Fyrirhuguð hækkun virðisaukaskatts bætist síðan við þá óvissu.

„Þegar stjórnvöld hyggjast svo meira en tvöfalda virðisaukaskatt á baðlón, úr 11% í 24%, með svo skömmum fyrirvara, getur það hæglega orðið dropinn sem fyllir mælinn.“

Skúli telur jafnframt skammsýni að ráðast í slíka skattahækkun við núverandi efnahagsaðstæður. Að hans mati þurfi að horfa til mögulegra áhrifa á fjárfestingar, atvinnusköpun og verðmætasköpun en ekki aðeins skatthlutfallsins sjálfs.

Hann bendir á að fyrir um áratug hafi aðeins fjögur baðlón verið starfandi hér á landi en nú séu þau um 18. Á sama tíma hafi tugir milljarða króna verið fjárfestir í uppbyggingu greinarinnar.

„Miklu skynsamlegra væri að leyfa þessari atvinnugrein að halda áfram að vaxa og dafna með tilheyrandi fjárfestingum, atvinnusköpun og auknum skatttekjum, fremur en að draga úr uppbyggingu hennar með skyndilegum skattahækkunum,“ segir Skúli.

Bendir á skattfrelsi sundlauganna

Hann vísar einnig til þess að hefðbundnar sundlaugar séu almennt undanþegnar virðisaukaskatti af aðgangseyri þótt þær séu að einhverju marki í samkeppni við einkarekin baðlón. Skúli segist þó aldrei hafa kvartað undan þeirri stöðu enda gegni sundlaugarnar mikilvægu samfélagslegu hlutverki.

Þá mótmælir hann þeirri nálgun að gagnrýni á skattahækkunina jafngildi kröfu um opinberan stuðning við atvinnugreinina.

Skúli segir fjölskyldu sína líta á Hvammsvík sem langtímaverkefni og að hagnaður hafi ekki verið tekinn út úr rekstrinum í formi arðgreiðslna heldur nýttur til áframhaldandi uppbyggingar.

„Mér finnst því bæði sérkennilegt og sorglegt ef umræðan er komin á það stig að gera lítið úr þeirri uppbyggingu sem frumkvöðlar og fjárfestar hafa staðið fyrir í ferðaþjónustu víðs vegar um landið.“

Segir auðvelt að sitja við lyklaborðið

Undir lok pistilsins beinir Skúli síðan orðum sínum beint að Sif og gagnrýnir afstöðu hennar með nokkuð hvössum hætti.

„Það er auðvelt að sitja við lyklaborðið og skrifa pistla um hvernig eigi að skattleggja fjárfestingar annarra. Það er allt annað að leggja eigið fé að veði, taka áhættu, byggja eitthvað upp frá grunni og skapa störf og verðmæti fyrir samfélagið.“

Þrátt fyrir gagnrýnina lýkur Skúli pistlinum á léttari nótum og býður Sif í heimsókn: „Að því sögðu, Sif, ertu að sjálfsögðu alltaf velkomin í böðin í Hvammsvík!“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Samskipti Jane Doe við einn hinna kærðu breyttust skyndilega
Heimur

Samskipti Jane Doe við einn hinna kærðu breyttust skyndilega

„Bókstaflega er fólk að gera þetta sífellt verr og verr með hverjum helvítis deginum.“
Pokémon-meistari kastaði upp vegna líkamslyktar keppanda
Heimur

Pokémon-meistari kastaði upp vegna líkamslyktar keppanda

Húsleit hafin í Ölgerðinni
Innlent

Húsleit hafin í Ölgerðinni

Áform um aftöku í beinni útsendingu harðlega gagnrýnd
Heimur

Áform um aftöku í beinni útsendingu harðlega gagnrýnd

Fölsuð vegabréf komu upp um karlmenn í Leifsstöð
Innlent

Fölsuð vegabréf komu upp um karlmenn í Leifsstöð

Ætlaði úr landi með þýfi úr Icewear og Jysk
Innlent

Ætlaði úr landi með þýfi úr Icewear og Jysk

„Hvað á maður að segja þegar horft er upp á aðra eins grimmd?“
Innlent

„Hvað á maður að segja þegar horft er upp á aðra eins grimmd?“

Þrjú börn fórust þegar fjölbýlishús hrundi
Heimur

Þrjú börn fórust þegar fjölbýlishús hrundi

Dauðsfall erlendis kveikir spurningar um réttindi íslenskra sjúklinga
Innlent

Dauðsfall erlendis kveikir spurningar um réttindi íslenskra sjúklinga

Kannabisakstur endaði með árekstri við Þrastalund og tveimur bílum utan vegar
Innlent

Kannabisakstur endaði með árekstri við Þrastalund og tveimur bílum utan vegar

Hundrað tonna bor leitar að vatni í Laugardalnum
Innlent

Hundrað tonna bor leitar að vatni í Laugardalnum

Blaðamaður Morgunblaðsins sýknaður
Innlent

Blaðamaður Morgunblaðsins sýknaður

Dýr miðborgardraumur með leyndum garði til sölu
Myndir
Fólk

Dýr miðborgardraumur með leyndum garði til sölu

Innlent

Skúli ósáttur við Sif og segir skrifin sérkennileg og sorgleg
Innlent

Skúli ósáttur við Sif og segir skrifin sérkennileg og sorgleg

„Sé viðskiptaáætlun Skúla Mogensen raunverulega svo viðkvæm að hún þoli ekki breytingu á virðisaukaskatti, er yfir höfuð fótur fyrir rekstrinum?“
Dauðsfall erlendis kveikir spurningar um réttindi íslenskra sjúklinga
Innlent

Dauðsfall erlendis kveikir spurningar um réttindi íslenskra sjúklinga

Húsleit hafin í Ölgerðinni
Innlent

Húsleit hafin í Ölgerðinni

Fölsuð vegabréf komu upp um karlmenn í Leifsstöð
Innlent

Fölsuð vegabréf komu upp um karlmenn í Leifsstöð

Ætlaði úr landi með þýfi úr Icewear og Jysk
Innlent

Ætlaði úr landi með þýfi úr Icewear og Jysk

„Hvað á maður að segja þegar horft er upp á aðra eins grimmd?“
Innlent

„Hvað á maður að segja þegar horft er upp á aðra eins grimmd?“

Loka auglýsingu