
Flutningur á um 100 tonna borbúnaði í Laugardalinn hófst í dag þar sem Veitur hyggjast bora eftir heitu vatni á tveimur stöðum til að tryggja afhendingaröryggi hitaveitunnar í Reykjavík. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veitum.
Borun hefst við Engjateig í næstu viku og stendur fram á vorið 2027. Þá verður einnig borað við Bolholt, en sú borun hefst síðar og verður mun skemmri.
Markmið framkvæmdanna er að auka afhendingaröryggi heita vatnsins og mæta aukinni eftirspurn vegna fólksfjölgunar og uppbyggingar í samfélaginu.
Laugardalurinn hefur sérstakan sess í sögu hitaveitu Reykjavíkur, eins og fram kemur í tilkynningu Veitna. Jarðhiti á svæðinu hefur verið nýttur til upphitunar í nærri öld og eru níu borholur nú þegar í notkun þar.
„Það er auðvelt að gleyma því í dagsins önn að undir götunum, húsunum og görðunum okkar er jarðhitaauðlind sem gegnir lykilhlutverki í daglegu lífi borgarbúa,“ segir Brynja Ragnarsdóttir, forstöðukona Vatnsmiðla hjá Veitum.
Hún segir framkvæmdina bæði snúast um að tryggja þjónustu til framtíðar og halda áfram langri sögu jarðhitanýtingar í Reykjavík.
Má búast við gufu á framkvæmdarsvæðinu
Borun eftir heitu vatni í miðri borg krefst umfangsmikils undirbúnings og verða framkvæmdasvæðin afmörkuð. Veitur segjast ætla að halda íbúum, rekstraraðilum og vegfarendum upplýstum um framgang verkefnisins meðan á framkvæmdum stendur.
Þráinn Friðriksson, auðlindaleiðtogi hitaveitu hjá Orkuveitunni, segir að þótt jarðhitinn á svæðinu sé vel þekktur gefi hver ný borhola mikilvægar upplýsingar um auðlindina.
„Við erum í raun að horfa niður í jarðhitakerfi sem er ósýnilegt frá yfirborði og leita að leiðum til að nýta það með ábyrgum og sjálfbærum hætti,“ segir hann.
Þegar borholan verður prófuð má búast við því að gufa sjáist á framkvæmdasvæðinu. Veitur segja það eðlilegan hluta af boruninni og verði íbúum og vegfarendum gert viðvart áður en það gerist.
