
Siðanefnd Blaðamannafélags Íslands hefur komist að þeirri niðurstöðu að Ólafur E. Jóhannsson, blaðamaður Morgunblaðsins, hafi ekki brotið gegn siðareglum blaðamanna með umfjöllun sinni um málefni leigutaka stangveiðiréttarins í Stóru Laxá. Var niðurstaðan birt á vef Blaðamannafélags Íslands í byrjun október.
Bergsnös ehf. og Finnur Björn Harðarson kærðu sex fréttir sem birtust í Morgunblaðinu dagana 6. til 9. júlí síðastliðinn. Þau töldu umfjöllunina einhliða og ósanngjarna og að ekki hefði verið leitað eftir sjónarmiðum þeirra áður en alvarlegar ásakanir voru birtar.
Kærendur töldu að brotið hefði verið gegn 2. og 6. grein siðareglna blaðamanna, meðal annars með því að gera ekki nægilegan greinarmun á staðreyndum og skoðunum og með birtingu órökstuddra ásakana.
Ólafur hafnaði því að hafa brotið siðareglur og sagði umfjöllunina hafa byggst á skriflegum gögnum og ummælum viðmælenda. Þá kom fram að síðar hefði verið leitað eftir sjónarmiðum Finns, lögmanns kærenda og formanns Stóru Laxárdeildar Veiðifélags Árnesinga. Finnur og lögmaður hans kusu að tjá sig ekki.
Siðanefnd taldi að vegna alvarleika ásakananna hefði verið æskilegt að leita andstæðra sjónarmiða fyrr, helst samhliða þriðju fréttinni sem birtist 7. júlí eða strax daginn eftir.
Nefndin gagnrýndi jafnframt að ekki hefði komið fram í umfjöllun Morgunblaðsins að reynt hefði verið að fá viðbrögð kærenda en þeir ekki viljað tjá sig. Slíkt hefði verið heiðarlegra gagnvart lesendum.
Þrátt fyrir þessa annmarka taldi nefndin að háttsemin fæli ekki í sér eiginlegt brot á siðareglum blaðamanna. Ólafur var því sýknaður af kærunni.
