
Kvörtun vegna ákvarðana barnaverndarþjónustu um vistun barna utan heimilis og umgengni var ekki tekin til frekari athugunar hjá umboðsmanni Alþingis þar sem kvörtunin barst eftir að lögbundinn ársfrestur var liðinn.
Málinu lauk með bréfi umboðsmanns 30. september síðastliðinn og var niðurstaðan birt á vef umboðsmanns í byrjun október.
Kvörtunin barst 26. september og beindist að barnaverndarþjónustu ótilgreinds sveitarfélags. Hún laut meðal annars að ákvörðunum tengdum vistun barna konu utan heimilis, umgengni hennar við börnin og málsmeðferð barnaverndarþjónustunnar.
Í kvörtuninni voru meðal annars gerðar athugasemdir við heimsókn barnaverndar á heimili konunnar 8. maí 2022. Þar sem ekki lá ljóst fyrir hvenær önnur atvik sem kvartað var yfir hefðu átt sér stað hafði starfsmaður umboðsmanns samband við konuna símleiðis 30. september.
Í samtalinu kom fram að vistun barnanna utan heimilis hefði átt sér stað árið 2022 og ákvörðun um umgengni verið tekin árið 2023. Þá lægi jafnframt fyrir dómur Landsréttar frá árinu 2024.
Samkvæmt lögum um umboðsmann Alþingis skal almennt bera fram kvörtun innan árs frá því að viðkomandi stjórnsýslugerningur var endanlega afgreiddur. Ekki varð ráðið af fyrirliggjandi upplýsingum að þær ákvarðanir eða þau atvik sem kvörtunin laut að féllu innan þess frests.
Umboðsmaður taldi því skilyrði ekki uppfyllt til að taka kvörtunina til frekari athugunar og lauk málinu.
Konunni var þó bent á að ef nýlegri ákvarðanir barnaverndarþjónustunnar lægju fyrir gæti hún leitað til umboðsmanns á ný með kvörtun vegna þeirra.
