Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veruleika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Rampar fyrir hjólastóla hjá sýslumanni uppfylltu ekki reglur

Aðgengi að húsnæðinu við Hlíða­smára var ófull­nægj­andi við sveitar­stjórnar­kosningarnar í maí.

Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
Sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu Mynd: Ja.is/Skjáskot

Umboðs­maður Alþingis hefur lokið athugun á aðgengi fatlaðs fólks að utan­kjörfundar­atkvæða­greiðslu á vegum sýslu­mannsins á höfuð­borgar­svæðinu eftir að úrbætur voru gerðar á húsnæði embættisins í Kópavogi.

Athugunin hófst í kjölfar ábendingar um að aðgengi að húsnæðinu við Hlíða­smára væri ófullnægjandi við sveitar­stjórnar­kosningarnar í maí. Meðal annars voru gerðar athuga­semdir við rampa sem komið hafði verið fyrir fyrir notendur hjóla­stóla. Þeir voru sagðir skorta nauðsynlegar bríkur og snúnings­flötur þeirra talinn of lítill.

Sýslu­maður upplýsti að leitað hefði verið ráðgjafar ÖBÍ réttinda­samtaka við undir­búning húsnæðisins. Síðar hefði þó komið í ljós að ramparnir uppfylltu ekki að öllu leyti ákvæði byggingar­reglugerðar. Engin vandræði eða óhöpp hefðu þó komið upp vegna aðgengisins.

Fyrir þjóðar­atkvæða­greiðsluna 29. ágúst var ráðist í úrbætur. Notendum hjóla­stóla og fólki sem á erfitt með gang var meðal annars gert kleift að nota starfsmanna­inngang á jarðhæð. Rampur var jafnframt lagfærður og palli bætt við til að auðvelda aðgengi.

Sýslu­maður sagði að aðgengið uppfyllti nú að öllu leyti kröfur byggingar­reglugerðar.

Umboðs­maður taldi því ekki ástæðu til frekari athugunar en áréttaði mikilvægi þess að stjórn­völd tækju ávallt mið af ólíkum þörfum fólks, sérstak­lega fatlaðra, við framkvæmd verkefna sinna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra