
Ísraelsk stjórnvöld gagnrýndu harðlega í dag að Suður afríski mannréttindalögfræðingurinn og dómarinn við Alþjóða sakamáladómstólinn, Navi Pillay skyldi hljóta friðarverðlaun Nóbels. Sögðu þau að með verðlaununum væri „hatri á Ísrael“ gefið lögmæti og að Joseph Goebbels, áróðursmeistari nasista, hlyti að „fagna þessu í helvíti“.
Pillay fór áður fyrir sjálfstæðri alþjóðlegri rannsóknarnefnd Sameinuðu þjóðanna um hernumdu palestínsku svæðin. Nefndin talar ekki fyrir hönd Sameinuðu þjóðanna í heild sinni og komst á síðasta ári að þeirri niðurstöðu að Ísrael væri að fremja þjóðarmorð á Gaza.
„Nú þegar Nóbelsnefndin hefur verðlaunað stærstu lygi 21. aldarinnar fagnar Joseph Goebbels eflaust þessu í helvíti,“ sagði í færslu ísraelska utanríkisráðuneytisins á samfélagsmiðlinum X.
Samkvæmt opinberum tölum heilbrigðisráðuneytis Palestínu, hafa að minnsta kosti 74.000 Palestínumenn verið drepnir af Ísraelsher frá 7. október 2023, þar af að minnsta kosti 21.000 börn. Það þýðir að einn hverjum 30 Palestínumanna á Gaza hafa verið drepnir. Þá hefur 1 af hverjum 13 Gaza-búum særst í árásum Ísraela.
