
Skiptum er lokið á þrotabúi Risk ehf. án þess að nokkur greiðsla fengist upp í lýstar kröfur í búið. Kröfurnar námu samtals tæplega 73 milljónum króna.
Bú félagsins var tekið til gjaldþrotaskipta með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur 9. apríl síðastliðinn.
Samkvæmt tilkynningu var skiptum í búinu lokið á skiptafundi 1. október. Skiptalok fóru fram með vísan til 155. greinar laga um gjaldþrotaskipti og fleira.
Alls hafði verið lýst kröfum í þrotabúið að fjárhæð 72.951.634 krónur. Engin greiðsla fékkst upp í kröfurnar.
Fékk tíu milljóna styrk
Risk ehf. hét áður RetinaRisk og sem vakti meðal annars athygli fyrir lausnir á sviði augnheilsu og áhættumats vegna augnsjúkdóma tengdra sykursýki.
Árið 2022 fékk RetinaRisk tíu milljóna króna styrk úr samstarfssjóði utanríkisráðuneytisins um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna vegna verkefnis á Indlandi.
