1
Fólk

Selja eina sérkennilegustu jörð landsins með jarðhýsum, reykkofa og þurrkhjalli

2
Innlent

Toyota á Íslandi innkallar vinsælan tengiltvinnbíl vegna slysahættu

3
Peningar

Greiddi ekki af láninu og nú vill Arion fá 84 milljónir

4
Innlent

Ungur Akureyringur geymdi milljónaágóða af fíkniefnasölu

5
Fólk

Róbert Wessman fagnaði afmælinu með ástvinum

6
Heimur

Dánarorsök systranna þriggja í Brighton opinberuð

7
Heimur

Heimili ellilífeyrisþega rifið meðan hann verslaði

8
Innlent

Hrottar herjuðu á hurð Hilmars

9
Innlent

Drap föður sinn en verður ekki svipt arfinum

10
Innlent

Dauðsfall erlendis kveikir spurningar um réttindi íslenskra sjúklinga

Til baka

Brúni hundamítillinn greindist á Selfossi

Kvikindið getur leynst í húsum mánuðum saman

Brúni hundamítillinn
Brúni hundamítillinnBrúni hundamítillinn getur lifað innandyra í marga mánuði
Mynd: gailhampshire/wikimedia

Brúni hundamítillinn hefur greinst á hundi á Selfossi. Matvælastofnun vinnur nú að því að koma í veg fyrir að mítillinn nái fótfestu hér á landi, en hann getur lifað innandyra í marga mánuði og leynst í sprungum, undir listum og í bælum dýra.

Eigandi hundsins fann mítillinn þegar feldur hundsins var burstaður og fór með hann til Dýralæknaþjónustu Suðurlands. Þaðan var hann sendur til greiningar á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum, þar sem staðfest var að um brúna hundamítilinn (Rhipicephalus sanguineus) væri að ræða.

Mítillinn hefur aðeins greinst í örfá skipti á Íslandi og er ekki talinn landlægur hér. Tekist hefur að uppræta hann í fyrri tilvikum.

Getur lifað mánuðum saman innandyra

Brúni hundamítillinn nærist fyrst og fremst á hundum en getur einnig lagst á önnur spendýr, svo sem nagdýr. Hann er sérstakur að því leyti að hann getur lokið öllum lífsferli sínum innandyra og því fundist allt árið um kring.

Samkvæmt Matvælastofnun eru aðeins um fimm prósent mítlanna á hundinum sjálfum en um 95 prósent í umhverfinu. Í upphituðu húsnæði getur mítillinn lifað í þrjá til fimm mánuði á hverju þroskastigi án þess að fá næringu.

Því getur þurft að meðhöndla bæði dýrið og heimilið ef brúni hundamítillinn greinist. Matvælastofnun mun fyrirskipa að dýr sem mítillinn hefur greinst á verði einangruð frá öðrum dýrum þar til viðurkennd lyfjameðhöndlun er hafin og orðin virk.

Samhliða meðhöndlun þarf að ryksuga heimilið daglega, meðal annars undir listum, við þröskulda og í sprungum þar sem mítlarnir geta leynst. Einnig þarf að þvo bæli dýrsins, teppi og fatnað. Ef ekki er hægt að þvo hluti getur frysting eða gufuhreinsun komið að gagni. Ef mikið er af mítlum í húsnæðinu gæti þurft að leita til meindýraeyðis.

Getur borið smitefni

Erlendis er þekkt að brúni hundamítillinn geti borið smitefni sem valda sjúkdómum í hundum, meðal annars Ehrlichia canis og Babesia canis.

Ehrlichia canis hefur aldrei greinst á Íslandi. Babesia canis greindist hins vegar í fyrsta sinn hér á landi í innfluttum hundi á einangrunarstöð í lok árs 2023, en hefur ekki greinst síðan.

Mítillinn getur einnig borið bakteríuna Rickettsia conorii, sem getur valdið sjúkdómi í fólki og er landlæg við Miðjarðarhaf. Sú baktería hefur aldrei greinst hér á landi.

Hvetja eigendur til að skoða gæludýr

Matvælastofnun hvetur hunda- og kattaeigendur til að skoða húð og feld dýra sinna reglulega og hafa samband við dýralækni ef mítill finnst eða grunur vaknar um mítla.

Almenningur og dýralæknar eru jafnframt hvattir til að varðveita mítla sem finnast á fólki eða dýrum og koma þeim til greiningar hjá Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.

Mikilvægt er að upplýsingar fylgi sýnum, meðal annars um dagsetningu og fundarstað, hvort mítillinn hafi fundist á manni eða dýri og hvar viðkomandi hafi haldið sig síðustu daga. Ef hann finnst á dýri þurfa einnig að fylgja upplýsingar um dýrið, eiganda þess og tengiliðaupplýsingar.

Algengast er að fuglamítlar, einnig nefndir lundamítlar, eða skógarmítlar finnist hér á landi. Þeir geta borist til landsins með farfuglum. Ef grunur vaknar um að um brúna hundamítilinn sé að ræða þarf að tilkynna það tafarlaust til Matvælastofnunar á [email protected].

Getur borist með fólki og farangri

Brúni hundamítillinn getur borist til Íslands með fólki og farangri frá löndum þar sem hann er landlægur, einkum eftir snertingu við dýr eða umhverfi þeirra.

Matvælastofnun bendir því á mikilvægi þess að þvo fatnað og búnað og hreinsa skó vandlega eftir slíka snertingu erlendis, annaðhvort áður en haldið er heim eða strax við komu til landsins.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Rampar fyrir hjólastóla hjá sýslumanni uppfylltu ekki reglur
Innlent

Rampar fyrir hjólastóla hjá sýslumanni uppfylltu ekki reglur

Aðgengi að húsnæðinu við Hlíðasmára var ófullnægjandi við sveitarstjórnarkosningarnar í maí.
Segja fjögur brottvísunarflug ICE hafa tekið eldsneyti á Keflavíkurflugvelli
Myndband
Innlent

Segja fjögur brottvísunarflug ICE hafa tekið eldsneyti á Keflavíkurflugvelli

Samþykkja umdeildar reglur á vinsælum ströndum Tenerife
Heimur

Samþykkja umdeildar reglur á vinsælum ströndum Tenerife

Ísraelar æfir yfir nýjasta friðarverðlaunahafanum
Heimur

Ísraelar æfir yfir nýjasta friðarverðlaunahafanum

Móðir of lengi að kvarta undan barnavernd
Innlent

Móðir of lengi að kvarta undan barnavernd

Risk tók áhættuna alla leið í þrot
Peningar

Risk tók áhættuna alla leið í þrot

Samskipti Jane Doe við einn hinna kærðu breyttust skyndilega
Heimur

Samskipti Jane Doe við einn hinna kærðu breyttust skyndilega

Skúli ósáttur við Sif og segir skrifin sérkennileg og sorgleg
Innlent

Skúli ósáttur við Sif og segir skrifin sérkennileg og sorgleg

Pokémon-meistari kastaði upp vegna líkamslyktar keppanda
Heimur

Pokémon-meistari kastaði upp vegna líkamslyktar keppanda

Húsleit hafin í Ölgerðinni
Innlent

Húsleit hafin í Ölgerðinni

Áform um aftöku í beinni útsendingu harðlega gagnrýnd
Heimur

Áform um aftöku í beinni útsendingu harðlega gagnrýnd

Fölsuð vegabréf komu upp um karlmenn í Leifsstöð
Innlent

Fölsuð vegabréf komu upp um karlmenn í Leifsstöð

Ætlaði úr landi með þýfi úr Icewear og Jysk
Innlent

Ætlaði úr landi með þýfi úr Icewear og Jysk

Innlent

Rampar fyrir hjólastóla hjá sýslumanni uppfylltu ekki reglur
Innlent

Rampar fyrir hjólastóla hjá sýslumanni uppfylltu ekki reglur

Aðgengi að húsnæðinu við Hlíðasmára var ófullnægjandi við sveitarstjórnarkosningarnar í maí.
Húsleit hafin í Ölgerðinni
Innlent

Húsleit hafin í Ölgerðinni

Segja fjögur brottvísunarflug ICE hafa tekið eldsneyti á Keflavíkurflugvelli
Myndband
Innlent

Segja fjögur brottvísunarflug ICE hafa tekið eldsneyti á Keflavíkurflugvelli

Brúni hundamítillinn greindist á Selfossi
Innlent

Brúni hundamítillinn greindist á Selfossi

Móðir of lengi að kvarta undan barnavernd
Innlent

Móðir of lengi að kvarta undan barnavernd

Skúli ósáttur við Sif og segir skrifin sérkennileg og sorgleg
Innlent

Skúli ósáttur við Sif og segir skrifin sérkennileg og sorgleg

Loka auglýsingu