1
Minning

Helgi Ólafsson er fallinn frá

2
Innlent

Hrekkjavökuskemmtun fór úr böndunum í Kópavogi

3
Fólk

Óvenjulegt sölutilboð í Reykjavík þar sem makaskipti koma til greina

4
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

5
Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sambandið þegar makinn er með ADHD

6
Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfirtekið Sjálfstæðisflokkinn

7
Fólk

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu

8
Innlent

Réttarhöld yfir Írisi „eltihrelli“ hefjast á mánudag

9
Innlent

Leigusalinn kenndi utanlandsferð um veggjalúsina

10
Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Til baka

„Eftir að hafa greinst með krabbamein lærði ég að lífið er núna“

Heiðdís Rósa Sigurjónsdóttir greindist með æxli í heila fyrir ári síðan

Heiðdís Rósa og Óðinn Svan
Heiðdís Rósa og Óðinn SvanHeiðdís Rósa opnar sig um erfið veikindi
Mynd: Facebook

Heiðdís Rósa Sigurjónsdóttir greindist með stórt heilaæxli fyrir ári síðan og gekkst undir tíu klukkustunda heilaskurðaðgerð. Í einlægri færslu á Facebook rifjar hún upp óvissuna, meðferðina og erfiðustu stundirnar, en segist jafnframt hafa lært að lífið sé núna.

Heiðdís Rósa Sigurjónsdóttir, innkaupastjóri Kjarnafæði Norðlenska, segir frá reynslu sinni af því að greinast með heilaæxli fyrir ári síðan í færslu á Facebook. Þar lýsir hún því hvernig grunur um veikindi hennar vaknaði löngu áður en greiningin lá fyrir, hvernig hún tók fréttunum og þeim áhrifum sem krabbameinsmeðferðin hefur haft á líf hennar.

Í október 2024 leitaði Heiðdís í tvígang til læknis vegna óvenjulegra tilfinninga í líkamanum. Eftir á komst hún að því að um flog hafði verið að ræða. Að hennar sögn voru einkennin þá skýrð með kvíða og streitu.

Hún fór í segulómun 22. september 2025 en hafði ekki fengið niðurstöðurnar þegar hún hafði samband við heilbrigðisþjónustuna 6. október og óskaði eftir upplýsingum.

Daginn eftir fékk hún skilaboð um að mæta í viðtal vegna niðurstaðnanna. Morguninn eftir var henni síðan sagt að taka aðstandanda með sér.

„Þá hugsaði ég: nei, nú er þetta búið, ég er dauðvona,“ skrifar Heiðdís.

Þegar hún mætti í viðtalið með eiginmanni sínum, Óðni Svan Óðinssonar, var henni sagt að stórt æxli væri hægra megin í heilanum.

Æxlið hafði sést á myndum frá 2017

Í færslunni segir Heiðdís að læknarnir hafi spurt hana hversu lengi hún hefði fundið fyrir einkennunum. Hún hafi þá viljað fá niðurstöðurnar strax. Síðar hafi komið í ljós að æxlið sæist á eldri myndum frá árinu 2017, en það hefði þá farið fram hjá röntgenlækni.

Heiðdís segir að greiningin hafi verið bæði raunveruleg og óraunveruleg í senn. Hún hafi þó strax hugsað um börnin sín þrjú og eiginmanninn.

„Ég VERÐ að vinna þetta, ég get ekki farið frá þeim,“ skrifar hún og lýsir því hvernig hún óttaðist tilhugsunina um að börnin hennar þyrftu að alast upp án móður sinnar.

Hún segir að hún hafi ekki grátið mikið vegna eigin veikinda, en tárin hafi komið þegar hún hugsaði um börnin eða sá að þeim leið illa.

Tíu klukkustunda aðgerð og meðferð í kjölfarið

Heiðdís gekkst undir tíu klukkustunda heilaskurðaðgerð þar sem æxlið var fjarlægt. Fimm dögum síðar hélt hún heim til Akureyrar sem farþegi í bíl.

Hún lýsir miklu þakklæti til heilaskurðlæknisins sem annaðist hana og segir hann hafa verið einstaklega rólegan, kláran og færan í samskiptum.

Í kjölfar aðgerðarinnar tók við geisla- og lyfjameðferð. Heiðdís segist hafa haldið að lyfjameðferðin yrði tiltölulega auðveld þar sem hún tæki lyfin í töfluformi heima, en reynslan hafi verið allt önnur.

„Lyfjameðferð er ERFIÐ, tekur fáránlega mikið á líkamlega OG andlega,“ skrifar hún.

Hún segir að þótt hún sé þakklát fyrir að vera á lífi upplifi hún einnig sorg yfir því að hafa misst fyrra þrek og þurfa að takast á við breytt útlit og líf sem sjúklingur.

„Ég skoða oft myndir frá því áður en ég greindist og hugsa: oh, ég vildi óska að ég væri þarna ennþá og myndi ekkert vita,“ segir hún.

Lærði að lífið er núna

Greiningin varð einnig til þess að Heiðdís fór að hugsa öðruvísi um lífið og tímann með fjölskyldunni.

Í upphafi lyfjameðferðar pantaði hún tvær utanlandsferðir, sem hún segir að eiginmaður hennar hafi kallað heimsreisur. Hún hafði lengi dreymt um að fara til Grikklands og segir mikilvægt að skapa góðar minningar með fjölskyldunni.

Hún fór einnig í ferð til Nice með vinkonu sinni, Sunnevu.

„Eftir að hafa greinst með krabbamein lærði ég að lífið er NÚNA,“ skrifar hún.

Erfitt að horfa á soninn þjást

Þrátt fyrir erfiðleikana við eigin veikindi segir Heiðdís að það hafi verið einna erfiðast að horfa upp á elsta son sinn, Berg Loga, þjást af miklum bakverkjum eftir tvær aðgerðir.

Níu mánuðum eftir fyrstu aðgerðina sé hann enn með mikla verki og nú sé skrúfa eða nagli í mjöðm hans farinn að valda honum óþægindum. Fjölskyldan bíði nú eftir svörum frá bæklunarlæknum um hvernig megi hjálpa honum.

„Að horfa á hann kvalinn, ósofinn og geta lítið sem ekkert gert er vægast sagt HRÆÐILEGT,“ skrifar Heiðdís.

Hún segist óska þess að hún gæti tekið þjáningarnar af honum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Strætó hefur aldrei verið verri
Skoðun

Brynjar Birgisson

Strætó hefur aldrei verið verri

Nál fannst í hrekkjavökusúkkulaði á Akureyri
Landið

Nál fannst í hrekkjavökusúkkulaði á Akureyri

Bauð internetinu í brúðkaupið og allt fór á annan endann
Heimur

Bauð internetinu í brúðkaupið og allt fór á annan endann

Dádýr skall á konu og braust inn í þvottahús
Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvottahús

Falsaðar ljósmyndir orðnar algengar í fasteignaauglýsingum
Myndir
Innlent

Falsaðar ljósmyndir orðnar algengar í fasteignaauglýsingum

Einn látinn og annar á gjörgæslu eftir hnífstunguárás í Breiðholti
Innlent

Einn látinn og annar á gjörgæslu eftir hnífstunguárás í Breiðholti

Sjö góðar ástæður til að baka oftar
Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Trúður vakti óhug við grunnskóla
Heimur

Trúður vakti óhug við grunnskóla

Breiðholtslaug, Laugardalur og Hósiló meðal staða sem fá góð meðmæli
Fólk

Breiðholtslaug, Laugardalur og Hósiló meðal staða sem fá góð meðmæli

Vopn komu við sögu þegar unglingapartý fór úr böndunum
Innlent

Vopn komu við sögu þegar unglingapartý fór úr böndunum

Gleymdi kaffibolla og rusli og endaði fyrir kærunefnd
Innlent

Gleymdi kaffibolla og rusli og endaði fyrir kærunefnd

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu
Myndir
Fólk

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu

Fluttur á bráðamóttöku eftir að eldur kom upp í íbúð
Innlent

Fluttur á bráðamóttöku eftir að eldur kom upp í íbúð

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar
Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Óvenjulegt sölutilboð í Reykjavík þar sem makaskipti koma til greina
Myndir
Fólk

Óvenjulegt sölutilboð í Reykjavík þar sem makaskipti koma til greina

Breiðholtslaug, Laugardalur og Hósiló meðal staða sem fá góð meðmæli
Fólk

Breiðholtslaug, Laugardalur og Hósiló meðal staða sem fá góð meðmæli

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu
Myndir
Fólk

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu

Fimm hlutir sem geta reynt á sambandið þegar makinn er með ADHD
Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sambandið þegar makinn er með ADHD

Ekkert minni konur en aðrar konur
Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Loka auglýsingu