1
Innlent

Skelfilegar aukaverkanir af nýju offitulyfi

2
Fólk

Stjórnarformaður Icelandair selur eitt dýrasta hús landsins

3
Innlent

Rétt tímasetning blóðþrýstingslyfja getur bjargað lífi

4
Innlent

Jóhannes leitar nýrra svara eftir eigin rangfærslur

5
Innlent

Launadeila úr hestaheiminum kostar Alendis

6
Heimur

Baráttukonan Jennifer sem neitaði að þegja fannst látin

7
Pólitík

Sigmundur Davíð vill afnema erfðafjárskattinn

8
Innlent

Jakob dæmdur fyrir gróft barnaníðsefni í símanum

9
Heimur

Kona fann ókunnugt lík í kistu móður sinnar

10
Heimur

„Auðlindirnar tilheyra okkur hundrað prósent“

Til baka

Eiríkur sjúkraþjálfari falsaði færslur og fékk milljónir greiddar

Til þyngingar var horft til þess að brotin voru kerfisbundin

Peningar seðlar krónur
Íslenskir seðlar
Mynd: Shutterstock

Sjúkraþjálfarinn Eiríkur Bergmann Henn hefur verið dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir fjársvik gegn Sjúkratryggingum Íslands (SÍ). Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp dóminn 22. september.

Eiríkur var sakfelldur fyrir að hafa á tímabilinu frá 22. mars til 26. september 2023 blekkt starfsfólk SÍ í 577 skipti til að samþykkja greiðslukröfur að fjárhæð samtals tæplega 3,8 milljónir króna.

Samkvæmt ákæru rangfærði Eiríkur upplýsingar á reikningum, meðal annars dagsetningar meðferða og gjaldaliði. Þá voru einnig gerðar kröfur vegna meðferða sem ekki fóru fram.

Málið hófst þegar eftirlitsdeild SÍ fékk ábendingu um óvenjumargar komur hjá Eiríki miðað við fjölda sjúklinga hans. Eftirlitsmál var opnað í september 2023 og óskað eftir gögnum um tímabókanir og meðferðir.

Eiríkur óskaði í kjölfarið eftir að 577 reikningar yrðu bakfærðir. SÍ komst síðar að þeirri niðurstöðu að alls 854 reikningar væru tilhæfulausir og krafði hann um tæplega sex milljóna króna endurgreiðslu. Eiríkur greiddi þá fjárhæð í desember 2023.

Við rannsókn héraðssaksóknara var ákærða hins vegar gefið að sök að hafa framið fjársvik vegna 577 reikninga og ofgreiðslna upp á 3,8 milljónir króna. Eiríkur hélt því fram að meginhluti meðferðanna hefði í raun farið fram áður en samningur hans við SÍ tók gildi og að hann hefði rangfært dagsetningar þeirra. Hann neitaði að hafa haft ásetning til að svíkja út fé.

Dómurinn féllst ekki á þær skýringar. Taldi hann háttsemi Eiríks bera ótvíræð merki þess að hann hefði ætlað að blekkja starfsmenn SÍ til að greiða fyrir meðferðir sem stofnuninni bar ekki að greiða. Var talið sannað yfir skynsamlegan vafa að hann hefði brotið af sér í auðgunarskyni.

Eiríkur hafði áður verið sviptur starfsleyfi sínu sem sjúkraþjálfari af landlækni. Dómurinn hafnaði þeirri kröfu hans að sakamálinu yrði vísað frá vegna banns við endurtekinni málsmeðferð og refsingu. Starfsleyfissviptingin teldist ekki refsikennd viðurlög heldur stjórnsýsluúrræði sem ætlað væri að tryggja gæði heilbrigðisþjónustu og öryggi sjúklinga.

Við ákvörðun refsingar var litið til þess að Eiríkur hafði ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi, endurgreitt féð og leitast við að upplýsa málið. Til þyngingar var horft til þess að brotin voru kerfisbundin og að hann hefði svikið fé úr ríkissjóði í starfi sínu.

Eiríkur var dæmdur í sex mánaða fangelsi, en fullnustu refsingarinnar er frestað og fellur hún niður að tveimur árum liðnum haldi hann almennt skilorð.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Grindvíkingum mun standa til boða að kaupa húsnæði sitt til baka
Landið

Grindvíkingum mun standa til boða að kaupa húsnæði sitt til baka

Skólahald og endurkaup fasteigna framundan
Börn bíða mánuðum og árum saman eftir aðstoð á Íslandi
Innlent

Börn bíða mánuðum og árum saman eftir aðstoð á Íslandi

Hnífakaup erlendis frá enduðu hjá umboðsmanni Alþingis
Innlent

Hnífakaup erlendis frá enduðu hjá umboðsmanni Alþingis

Hnísur leika sér fyrir utan 100 milljóna króna hús
Myndir
Fólk

Hnísur leika sér fyrir utan 100 milljóna króna hús

Jakob dæmdur fyrir gróft barnaníðsefni í símanum
Innlent

Jakob dæmdur fyrir gróft barnaníðsefni í símanum

Ökumaður í ólöglegri dvöl framdi tvo aðra glæpi
Innlent

Ökumaður í ólöglegri dvöl framdi tvo aðra glæpi

Baráttukonan Jennifer sem neitaði að þegja fannst látin
Heimur

Baráttukonan Jennifer sem neitaði að þegja fannst látin

„Við munum höfða mál gegn ríkinu“
Innlent

„Við munum höfða mál gegn ríkinu“

Sigmundur Davíð vill afnema erfðafjárskattinn
Pólitík

Sigmundur Davíð vill afnema erfðafjárskattinn

Kona fann ókunnugt lík í kistu móður sinnar
Heimur

Kona fann ókunnugt lík í kistu móður sinnar

Þriggja ára drengur drukknaði á meðan móðir hans var ölvuð
Heimur

Þriggja ára drengur drukknaði á meðan móðir hans var ölvuð

Rétt tímasetning blóðþrýstingslyfja getur bjargað lífi
Innlent

Rétt tímasetning blóðþrýstingslyfja getur bjargað lífi

Ellefu særðir eftir skotárás í skóla
Heimur

Ellefu særðir eftir skotárás í skóla

Innlent

Börn bíða mánuðum og árum saman eftir aðstoð á Íslandi
Innlent

Börn bíða mánuðum og árum saman eftir aðstoð á Íslandi

Biðlistar lengjast og vandi eykst
„Við munum höfða mál gegn ríkinu“
Innlent

„Við munum höfða mál gegn ríkinu“

Eiríkur sjúkraþjálfari falsaði færslur og fékk milljónir greiddar
Innlent

Eiríkur sjúkraþjálfari falsaði færslur og fékk milljónir greiddar

Hnífakaup erlendis frá enduðu hjá umboðsmanni Alþingis
Innlent

Hnífakaup erlendis frá enduðu hjá umboðsmanni Alþingis

Jakob dæmdur fyrir gróft barnaníðsefni í símanum
Innlent

Jakob dæmdur fyrir gróft barnaníðsefni í símanum

Ökumaður í ólöglegri dvöl framdi tvo aðra glæpi
Innlent

Ökumaður í ólöglegri dvöl framdi tvo aðra glæpi

Loka auglýsingu