
Máni Ramzy Norðfjörð Secka hefur verið dæmdur í 15 mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir rán, líkamsárás, fíkniefna- og vopnalagabrot, umferðarlagabrot og tilraun til brots gegn friðhelgi einkalífs. Dómurinn var kveðinn upp 11. september.
Máni var meðal annars sakfelldur fyrir rán á skemmtistað í Reykjavík. Þar neyddi hann mann til að millifæra 50 þúsund krónur inn á reikning vinar síns með hótun um líkamlegt ofbeldi. Brotaþolinn bar fyrir dómi að Máni hefði hótað að stinga hann og hefði hann því ekki þorað annað en að millifæra fjárhæðina.
Máni hélt því fram að um greiðslu fyrir tvö grömm af kókaíni hefði verið að ræða. Dómurinn taldi þá skýringu ótrúverðuga og lagði framburð brotaþolans til grundvallar.
Máni var einnig sakfelldur fyrir minniháttar líkamsárás á fyrrverandi sambýliskonu sína. Dómurinn taldi sannað að hann hefði slegið hana í hægri upphandlegg og efri vör. Hann var hins vegar sýknaður af alvarlegri ásökunum um annað ofbeldi gegn henni, meðal annars um að hafa tekið hana hálstaki, kýlt hana og kastað rafsígarettu í andlit hennar.
Þá var Máni sakfelldur fyrir að hafa tekið farsíma konunnar og reynt að komast inn í hann til að hnýsast í einkamálefni hennar. Ákæru um eignaspjöll vegna skemmda á símanum og bifreið hennar var vísað frá dómi.
Máni játaði jafnframt fíkniefna- og vopnalagabrot auk þess að hafa ekið án ökuréttinda og undir áhrifum fjölda fíkniefna og lyfja. Hann var sviptur ökuréttindum í 18 mánuði.
Við ákvörðun refsingar var meðal annars horft til fyrri dóms Mána og þess að hann hefði rofið skilorð.
Mána var jafnframt gert að greiða fyrrverandi sambýliskonu sinni 250 þúsund krónur í miskabætur auk vaxta.