1
Minning

Helgi Ólafsson er fallinn frá

2
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

3
Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sambandið þegar makinn er með ADHD

4
Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfirtekið Sjálfstæðisflokkinn

5
Fólk

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu

6
Innlent

Réttarhöld yfir Írisi „eltihrelli“ hefjast á mánudag

7
Innlent

Leigusalinn kenndi utanlandsferð um veggjalúsina

8
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

9
Innlent

Falsaðar ljósmyndir orðnar algengar í fasteignaauglýsingum

10
Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Til baka

Lífsstílsvenjan sem gæti hægt á öldrun

Ertu að safna í „líforkusjóðinn“?

Eldra fólk
Regluleg hreyfing allt lífið eykur seiglu líkamans gegn sjúkdómum
Mynd: Unsplash/Documerica

Regluleg hreyfing í gegnum ævina eykur svokallaða „líforkugetu“ líkamans og hjálpar honum að bregðast betur við streitu og sjúkdómum á efri árum.

Þetta eru niðurstöður nýrrar rannsóknar sem birtist í vísindaritinu GeroScience. Rannsóknin varpar nýju ljósi á hvernig líkamleg virkni stuðlar að heilbrigðari öldrun, en ólíkt fyrri rannsóknum sem hafa aðallega einblínt á dánartíðni, mælir þessi hversu seigur og mótstöðugóður líkaminn er gegn álagi.

Vísindamenn rannsökuðu tvo hópa fólks í Nice í Frakklandi sem voru að meðaltali 64 ára gamlir. Annar hópurinn hafði stundað þolþjálfun að minnsta kosti þrisvar sinnum í viku í 30 ár, á meðan hinn hópurinn hreyfði sig sáralítið.

Gögnum um hjartslátt, vöðvastyrk, lungnastarfsemi og blóðmerki var safnað saman í eina heildarmælingu sem vísindamenn kalla „líforkugetu“ (e. vitality capacity). Þessi mæling sýnir lífeðlisfræðilegan varasjóð líkamans – það er getu hans til að berjast gegn álagi.

Marktækur munur á súrefnismettun

Niðurstöðurnar sýndu að líforkugetan var marktækt hærri hjá þeim sem höfðu hreyft sig reglulega alla ævi, sérstaklega hvað varðar ónæmiskerfið og streituviðbrögð. Þá kom í ljós skýr munur á súrefnismettun í blóði, en hún mældist að meðaltali 96,8 prósent hjá virka hópnum en 94,8 prósent hjá þeim óvirka.

Athyglisvert er að rannsakendur fundu engan afgerandi mun á milli hópanna tveggja þegar kom að hreinum vöðvastyrk (svo sem handgripi eða hnéstyrk), lungnastarfsemi eða bólguvöldum í líkamanum. Það gefur til kynna að helsti ávinningur langtímahreyfingar liggi frekar í innri seiglu líkamans og viðbragðsgetu hans við álagi fremur en ytri styrk.

Vísindamennirnir benda á að rannsóknin hafi verið smá í sniðum og sé fremur könnunarrannsókn sem gott sé að byggja á í framtíðinni. Hún sýni hins vegar sterka vísbendingu um að hreyfing sé ein besta fjárfestingin fyrir heilbrigða öldrun.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Strætó hefur aldrei verið verri
Skoðun

Brynjar Birgisson

Strætó hefur aldrei verið verri

Nál fannst í hrekkjavökusúkkulaði á Akureyri
Landið

Nál fannst í hrekkjavökusúkkulaði á Akureyri

Bauð internetinu í brúðkaupið og allt fór á annan endann
Heimur

Bauð internetinu í brúðkaupið og allt fór á annan endann

Dádýr skall á konu og braust inn í þvottahús
Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvottahús

Falsaðar ljósmyndir orðnar algengar í fasteignaauglýsingum
Myndir
Innlent

Falsaðar ljósmyndir orðnar algengar í fasteignaauglýsingum

Einn látinn og annar á gjörgæslu eftir hnífstunguárás í Breiðholti
Innlent

Einn látinn og annar á gjörgæslu eftir hnífstunguárás í Breiðholti

Sjö góðar ástæður til að baka oftar
Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Trúður vakti óhug við grunnskóla
Heimur

Trúður vakti óhug við grunnskóla

Breiðholtslaug, Laugardalur og Hósiló meðal staða sem fá góð meðmæli
Fólk

Breiðholtslaug, Laugardalur og Hósiló meðal staða sem fá góð meðmæli

Vopn komu við sögu þegar unglingapartý fór úr böndunum
Innlent

Vopn komu við sögu þegar unglingapartý fór úr böndunum

Gleymdi kaffibolla og rusli og endaði fyrir kærunefnd
Innlent

Gleymdi kaffibolla og rusli og endaði fyrir kærunefnd

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu
Myndir
Fólk

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu

Fluttur á bráðamóttöku eftir að eldur kom upp í íbúð
Innlent

Fluttur á bráðamóttöku eftir að eldur kom upp í íbúð

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar
Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Óvenjulegt sölutilboð í Reykjavík þar sem makaskipti koma til greina
Myndir
Fólk

Óvenjulegt sölutilboð í Reykjavík þar sem makaskipti koma til greina

Breiðholtslaug, Laugardalur og Hósiló meðal staða sem fá góð meðmæli
Fólk

Breiðholtslaug, Laugardalur og Hósiló meðal staða sem fá góð meðmæli

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu
Myndir
Fólk

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu

Fimm hlutir sem geta reynt á sambandið þegar makinn er með ADHD
Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sambandið þegar makinn er með ADHD

Ekkert minni konur en aðrar konur
Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Loka auglýsingu