1
Minning

Árni Þór Grétarsson er fallinn frá

2
Minning

Dagný Ósk Vestmann er látin

3
Innlent

Reykjavíkurborg segir upp 15 leigusamningum við listafólk á sama tíma

4
Innlent

Eiríkur sjúkraþjálfari falsaði færslur og fékk milljónir greiddar

5
Innlent

Íslenskur karlmaður dæmdur fyrir gróft barnaníðsefni í símanum

6
Fólk

Hnísur leika sér fyrir utan 100 milljóna króna hús

7
Innlent

Vildi komast að því hverjir skoðuðu sjúkraskrána

8
Pólitík

Eyjólfur sendir Morgunblaðinu tóninn

9
Heimur

Flaug til Tenerife en var handtekinn við lendingu

10
Innlent

Ökumaður í ólöglegri dvöl framdi tvo aðra glæpi

Til baka

Hjón urðu fyrir eldingu á kvöldgöngu í Flórída

Höfðu skilið þrjú börn sín eftir á æskulýðssamkomu í kirkju

aaronclaire
Aaron og Claire
Mynd: Samsett

Hjón í Flórída í Bandaríkjunum telja sig hafa upplifað kraftaverk eftir að eldingu laust niður í þau á kvöldgöngu fyrr í þessum mánuði. Þau slösuðust alvarlega en hafa náð ótrúlegum bata.

Aaron Walenga og eiginkona hans Clare höfðu skilið þrjú börn sín eftir á æskulýðssamkomu í kirkju 2. september og ákveðið að nýta kvöldið saman. Eftir kvöldverð fóru þau í göngutúr og leiddust eftir gönguleið þegar óveður skall skyndilega á.

Eldingu laust niður í hjónin án fyrirvara. Aaron sagðist fyrst hafa talið að bifreið hefði ekið á þau. Hann lá ringlaður og gat vart hreyft sig eða talað. Clare missti meðvitund og hætti að anda um tíma.

Fjórir vegfarendur komu þeim þegar til aðstoðar, hringdu í neyðarlínuna og hófu endurlífgun á Clare. Að sögn hjónanna var hún orðin blá og andaði ekki í þrjár til fjórar mínútur áður en hjálp barst.

Aaron hlaut meðal annars beinbrot í kringum augun, nefbrot, tannskemmdir, skurði í andliti og brunasár á höndum og úlnliðum. Hjónin greindust bæði með heilablæðingar og Clare varð einnig fyrir hjartaskaða.

Þau segja lækna hafa komist að því tveimur dögum síðar að heilablæðingarnar væru horfnar og hjarta Clare hefði náð sér. Clare, sem glímdi tímabundið við minnistap, endurheimti einnig minnið.

Hjónin þakka skjót viðbrögð vegfarendanna og segja trú sína hafa hjálpað þeim í gegnum lífsreynsluna. Þau hafa síðan myndað náin tengsl við fólkið sem kom þeim til bjargar og hyggjast snúa aftur á gönguleiðina á næstu vikum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Íslenskur fjallaskáli meðal þeirra bestu í Evrópu
Landið

Íslenskur fjallaskáli meðal þeirra bestu í Evrópu

Á listanum eru nokkrir óvenjulegir skálar
Mótmælandi hótaði að nauðga lögreglukonu
Innlent

Mótmælandi hótaði að nauðga lögreglukonu

Vitni kallað fyrir dóm vegna 25 ára gamals dauðsfalls
Innlent

Vitni kallað fyrir dóm vegna 25 ára gamals dauðsfalls

Akureyringur ákærður fyrir dópsölu og peningaþvætti
Innlent

Akureyringur ákærður fyrir dópsölu og peningaþvætti

Máni hótaði að stinga mann og neyddi hann til að borga
Innlent

Máni hótaði að stinga mann og neyddi hann til að borga

Hægt á verðhækkunum á matvöru
Peningar

Hægt á verðhækkunum á matvöru

Barnageðlæknir segir trans börn mæta „rangfærslum og vitleysu“
Innlent

Barnageðlæknir segir trans börn mæta „rangfærslum og vitleysu“

Eggjakast í umferðinni olli fjaðrafoki
Innlent

Eggjakast í umferðinni olli fjaðrafoki

Krónan frystir verð til að berjast gegn verðbólgunni
Peningar

Krónan frystir verð til að berjast gegn verðbólgunni

Vitleysingar stefndu sér í lífshættu í Reynisfjöru
Myndband
Landið

Vitleysingar stefndu sér í lífshættu í Reynisfjöru

Lífsstílsvenjan sem gæti hægt á öldrun
Fólk

Lífsstílsvenjan sem gæti hægt á öldrun

Vilja breyta vannýttu svæði á Akureyri í lifandi samfélagsgarð
Landið

Vilja breyta vannýttu svæði á Akureyri í lifandi samfélagsgarð

Heimur

Hjón urðu fyrir eldingu á kvöldgöngu í Flórída
Heimur

Hjón urðu fyrir eldingu á kvöldgöngu í Flórída

Höfðu skilið þrjú börn sín eftir á æskulýðssamkomu í kirkju
Þriggja ára drengur drukknaði á meðan móðir hans var ölvuð
Heimur

Þriggja ára drengur drukknaði á meðan móðir hans var ölvuð

Sex handteknir þegar mótmæli gegn hælisleitendum fóru úr böndunum
Heimur

Sex handteknir þegar mótmæli gegn hælisleitendum fóru úr böndunum

Flaug til Tenerife en var handtekinn við lendingu
Heimur

Flaug til Tenerife en var handtekinn við lendingu

Baráttukonan Jennifer sem neitaði að þegja fannst látin
Heimur

Baráttukonan Jennifer sem neitaði að þegja fannst látin

Kona fann ókunnugt lík í kistu móður sinnar
Heimur

Kona fann ókunnugt lík í kistu móður sinnar

Loka auglýsingu