1
Minning

Árni Þór Grétarsson er fallinn frá

2
Minning

Dagný Ósk Vestmann er látin

3
Innlent

Reykjavíkurborg segir upp 15 leigusamningum við listafólk á sama tíma

4
Innlent

Eiríkur sjúkraþjálfari falsaði færslur og fékk milljónir greiddar

5
Innlent

Íslenskur karlmaður dæmdur fyrir gróft barnaníðsefni í símanum

6
Fólk

Hnísur leika sér fyrir utan 100 milljóna króna hús

7
Innlent

Vildi komast að því hverjir skoðuðu sjúkraskrána

8
Pólitík

Eyjólfur sendir Morgunblaðinu tóninn

9
Heimur

Flaug til Tenerife en var handtekinn við lendingu

10
Innlent

Ökumaður í ólöglegri dvöl framdi tvo aðra glæpi

Til baka

Mótmælandi hótaði að nauðga lögreglukonu

Fjórir lögreglumenn báru hann í lyftu til að flytja hann niður í bílakjallara

Utanríkisráðuneytið
Utanríkisráðuneytið
Mynd: Utanríkisráðuneytið

Karlmaður hefur verið dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að hóta lögreglukonu ofbeldi þegar hann var handtekinn í tengslum við mótmæli við utanríkisráðuneytið í október 2024.

Maðurinn, Naji B. A. Asar, tók þátt í mótmælum við ráðuneytið 15. október 2024. Samkvæmt dóminum fór hann yfir grindverk og inn á lokað svæði og upp á þakbrún. Lögregla ákvað í kjölfarið að handtaka hann.

Við handtökuna var maðurinn færður í handjárn og gleraugu hans tekin af honum til að koma í veg fyrir að þau skemmdust. Fjórir lögreglumenn báru hann síðan í lyftu til að flytja hann niður í bílakjallara.

Í lyftunni sagði maðurinn við lögreglukonu sem hélt á gleraugum hans: „If I’m not find my glasses I will fuck you.“ Ákæruvaldið taldi að í orðunum hefði falist hótun um ofbeldi.

Maðurinn neitaði sök og sagði fyrir dómi að orðunum hefði ekki verið beint að neinum sérstökum. Merking þeirra hefði að hans sögn verið sambærileg við að segja lögreglumönnunum að fara til helvítis.

Fjórir lögreglumenn sem voru í lyftunni báru hins vegar á annan veg. Dómurinn taldi framburð þeirra samhljóða og trúverðugan um að maðurinn hefði beint orðunum að lögreglukonunni. Hún sagðist sjálf hafa tekið orðunum alvarlega og litið á þau sem hótun.

Dómurinn taldi sannað hafið yfir skynsamlegan vafa að um hótun hefði verið að ræða og sakfelldi manninn fyrir brot gegn valdstjórninni.

Honum var gert að sæta 30 daga fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára. Þá var honum gert að greiða 900 þúsund krónur í málsvarnarlaun.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Íslenskur fjallaskáli meðal þeirra bestu í Evrópu
Landið

Íslenskur fjallaskáli meðal þeirra bestu í Evrópu

Á listanum eru nokkrir óvenjulegir skálar
Hjón urðu fyrir eldingu á kvöldgöngu í Flórída
Heimur

Hjón urðu fyrir eldingu á kvöldgöngu í Flórída

Vitni kallað fyrir dóm vegna 25 ára gamals dauðsfalls
Innlent

Vitni kallað fyrir dóm vegna 25 ára gamals dauðsfalls

Akureyringur ákærður fyrir dópsölu og peningaþvætti
Innlent

Akureyringur ákærður fyrir dópsölu og peningaþvætti

Máni hótaði að stinga mann og neyddi hann til að borga
Innlent

Máni hótaði að stinga mann og neyddi hann til að borga

Hægt á verðhækkunum á matvöru
Peningar

Hægt á verðhækkunum á matvöru

Barnageðlæknir segir trans börn mæta „rangfærslum og vitleysu“
Innlent

Barnageðlæknir segir trans börn mæta „rangfærslum og vitleysu“

Eggjakast í umferðinni olli fjaðrafoki
Innlent

Eggjakast í umferðinni olli fjaðrafoki

Krónan frystir verð til að berjast gegn verðbólgunni
Peningar

Krónan frystir verð til að berjast gegn verðbólgunni

Vitleysingar stefndu sér í lífshættu í Reynisfjöru
Myndband
Landið

Vitleysingar stefndu sér í lífshættu í Reynisfjöru

Lífsstílsvenjan sem gæti hægt á öldrun
Fólk

Lífsstílsvenjan sem gæti hægt á öldrun

Vilja breyta vannýttu svæði á Akureyri í lifandi samfélagsgarð
Landið

Vilja breyta vannýttu svæði á Akureyri í lifandi samfélagsgarð

Innlent

Mótmælandi hótaði að nauðga lögreglukonu
Innlent

Mótmælandi hótaði að nauðga lögreglukonu

Fjórir lögreglumenn báru hann í lyftu til að flytja hann niður í bílakjallara
Eggjakast í umferðinni olli fjaðrafoki
Innlent

Eggjakast í umferðinni olli fjaðrafoki

Vitni kallað fyrir dóm vegna 25 ára gamals dauðsfalls
Innlent

Vitni kallað fyrir dóm vegna 25 ára gamals dauðsfalls

Akureyringur ákærður fyrir dópsölu og peningaþvætti
Innlent

Akureyringur ákærður fyrir dópsölu og peningaþvætti

Máni hótaði að stinga mann og neyddi hann til að borga
Innlent

Máni hótaði að stinga mann og neyddi hann til að borga

Barnageðlæknir segir trans börn mæta „rangfærslum og vitleysu“
Innlent

Barnageðlæknir segir trans börn mæta „rangfærslum og vitleysu“

Loka auglýsingu