
Héraðsdómi Reykjaness hefur borist réttarbeiðni frá héraðsdómi í Póllandi vegna einkamáls sem þar er rekið og varðar miskabætur vegna dauðsfalls sem átti sér stað árið 2001.
Málið snýst um mann sem fannst með áverka á sporvagnateinum við stoppistöð í borginni Ruda Slaska í Póllandi þann 9. apríl 2001. Aðstandandi hins látna hefur höfðað mál gegn pólska sporvagnafyrirtækinu Tramwaje Slaskie Spólka Akcyjna í Chorzów og krefst miskabóta vegna andlátsins.
Við meðferð málsins í Póllandi hefur verið ákveðið að maður, sem skráður er með ótilgreint heimilisfang í Reykjanesbæ, gefi vitnaskýrslu hér á landi.
Maðurinn hefur verið kvaddur til að mæta til skýrslugjafar fyrir Héraðsdómi Reykjaness.
Tilgangur skýrslutökunnar er að vitnið svari spurningum sem lúta að andláti mannsins sem fannst á sporvagnateinunum fyrir rúmum 25 árum.
Í fyrirkallinu kemur jafnframt fram að mæti vitnið ekki fyrir dóm án lögmætra forfalla megi það búast við því að verða handtekið af lögreglu og fært fyrir dóm.