Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Aukning MS-sjúkdómsins rakin til lífsstíls

Hollywood-stjörnur læra að ganga með staf

Leikkonan Christina Applegate opnar sig um hraðan framgang MS-sjúkdómsins
Leik­konan Christina App­legate opnar sig um hraðan fram­gang MS-sjúk­dóms­ins Mynd: Instagram/Oprahshow

Bandarískir sérfræðingar vara nú við vaxandi algengi MS-sjúk­dómsins og benda á að algengar lífsstíls­venjur ásamt tilteknum vítamíns­korti spili þar stórt hlutverk. Samhliða því er vakin athygli á þeim breytingum sem fólk getur gert til þess að minnka líkurnar á sjúk­dómnum eða hægja á framgangi hans.

Greiningum á MS-sjúk­dómnum fer fjölgandi meðal fólks á miðjum aldri og eldra, en í áratugi var sjúk­dómurinn nánast eingöngu tengdur við ungt fólk með erfða­fræðilega tilhneigingu. Sérfræðingar lýsa yfir áhyggjum af þessari þróun og segja samspil margra ólíkra þátta valda því að sjúk­dómurinn brjótist fram síðar á ævinni.

Leik­konurnar Christina Applegate og Selma Blair, sem báðar þurftu að læra að ganga með staf á fimmtugs- og sextugsaldri. Rann­sóknir sýna að þetta eru ekki einangruð tilfelli; á Ítalíu ríflega þrefölduðust MS-greiningar meðal fólks á sjötugsaldri á árunum 2005 til 2020, og í Noregi fóru greiningar hjá fólki fimmtugt og eldra úr 2,6% fyrir árið 1970 í tæp 12% eftir árið 2010.

Dropinn sem fyllir mælinn

„Það að þróa með sér MS er ekki eitthvað sem gerist í einu höggi,“ segir Dr. Erin Longbrake, tauga­sérfræðingur sem sérhæfir sig í MS-sjúk­dómnum, í frétt á AOL.

„Þetta eru allir litlu steinarnir sem safnast saman á vigtinni þar til hún fellur á endanum yfir í sjúkdóm.“

Þótt betri greiningar­tækni og hækkandi lífaldur skýri hluta af tölfræðinni telja flestir vísinda­menn að raun­veruleg aukning sé í gangi. Dr. Rab Nawaz Khan, tauga­sérfræðingur í Bretlandi, segir að þróunin sé raun­veruleg en ómögulegt sé að benda á eina skýringu. Líklegast sé um flókið samspil umhverfis- og lífsstíls­þátta að ræða.

Líf Christinu Applegate umturnaðist

Christina Applegate greindist með sjúk­dóminn árið 2021, þá 49 ára gömul, við tökur á þáttunum Dead to Me. Hún hafði áður sigrast á brjósta­krabba­meini árið 2008 og hélt áfram farsælum ferli sínum samhliða móður­hlutverkinu þar til MS-sjúk­dómurinn bankaði upp á.

Sjúk­dómurinn ágerðist hratt. Upphafleg einkenni á borð við dofa og jafnvægis­leysi þróuðust fljótt yfir í mikið máttleysi í fótum, tauga­verki, sjón­truflanir og meltingar­vegs­vandamál. Í sjónvarps­viðtali fyrr á þessu ári ræddi hún opinskátt um sorgina sem fylgir því að missa líkamlega getu sína og leiklistar­ferilinn.

„Hvar er ég stödd með að sætta mig við þetta? Ég hata þetta,“ sagði Applegate hreinskilnis­lega um greininguna.

Lífsstílsþættir spila inn í

Samkvæmt nýjum saman­tektum sérfræðinga getur skortur á D-vítamíni verið einn af helstu áhættu­þáttunum sem tengjast auknum fjölda greininga. Auk vítamíns­kortsins eru lífsstíls­þættir á borð við reykingar, offitu og óhollt mataræði sannaðir samverka­menn í því að auka líkur á sjúk­dómnum og flýta fyrir versnun hans.

MS er lang­vinnur bólgu­sjúkdómur sem leggst á miðtaugakerfið en sérfræðingar leggja nú ríka áherslu á að hægt sé að grípa til fyrir­byggjandi aðgerða. Í AOL kemur fram að með því að huga vel að D-vítamín­búskap líkamans, hætta reykingum og viðhalda heil­brigðu mataræði og þyngd er hægt að draga verulega úr áhættunni og hafa jákvæð áhrif á sjúkdóms­ferlið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki heldur farga henni
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs