1
Fólk

Eitt dýrasta einbýli landsbyggðarinnar til sölu

2
Peningar

Fyrirtæki sem eiginmaður Kristrúnar á hlut í tapar tugum milljóna

3
Innlent

Októberlægð á leiðinni til landsins sem gæti orðið sú dýpsta í áratugi

4
Fólk

Fimmtán ára stóð Andrea í hárinu á glæpamönnum og gafst ekki upp

5
Heimur

Kona flaug alein til Boston og fékk vélina út af fyrir sig

6
Fólk

Fimm fatamistök sem geta gert flugferðina verri

7
Fólk

Sorgin breytti sýn Andreu á lífið

8
Heimur

Sjötíu og sjö prósent líkur á eldgosi á Kanaríeyjum

9
Heimur

Tvöfalt líf kennara komst upp og kostaði hana starfið

10
Fólk

Landsliðsmaður Íslands á von á barni

Til baka

Dagný Ósk Vestmann er látin

Óttaðist dauðann og fór strax að skipuleggja jarðarförina

Dagný Ósk
Dagný Ósk Vestmann„Mikilvægt að finna það fallega í litlu hlutunum“
Mynd: Mannlíf

Dagný Ósk Vestmann er látin, 38 ára að aldri, eftir baráttu við krabbamein. Hún lést á líknardeild Landspítalans eftir stutta innlögn. Dagný lætur eftir sig eiginmann og tvö börn. Hún vakti mikla athygli fyrir opinskáa og einlæga frásögn af veikindum sínum, þar sem hún notaði reynslu sína til þess að minna fólk á að finna gleðina í litlu hlutunum.

Dagný greindist fyrst með þriðja stigs, illkynja og hormónajákvætt brjóstakrabbamein síðla árs 2017, þá aðeins þrítug að aldri. Meinið hafði þá þegar dreift sér í eitla og nokkrum árum síðar kom í ljós að það hafði dreift sér víðar um líkamann.

Í viðtali við Mannlíf árið 2021 lýsti Dagný þeim mikla hugarhræringi og ótta sem greiningunni fylgdi í upphafi: „Ég fór strax að jarða sjálfa mig í huganum um leið og læknirinn sagði mér að ég væri með krabbamein. Ég var komin með lagalistann fyrir jarðarförina og búin að setja krossinn á leiðið og allt saman.“

Mætti fordómum og „móðursýkisstimplun“

Leið Dagnýjar að greiningu var ekki án hindrana. Hún fann fyrst fyrir stórri kúlu í brjóstinu ágúst 2017 en fékk dræmar undirtektir hjá fyrsta lækninum sem hún leitaði til. Hún sagði lækninn hafa vísað áhyggjum hennar á bug og talið kúluna hormónatengda.

„Ég nennti ekki að díla við þetta viðmót og þessa móðursýkis stimplun,“ sagði Dagný um ákvörðun sína að segja lækninum síðar að kúlan væri farin, til þess eins að losna við viðmótið, en ætlaði sér að leita annað. Þegar lögun brjóstsins breyttist skömmu síðar fékk móðir hennar tíma fyrir hana á Leitarstöðinni. Þann 12. desember 2017 fékk hún loks staðfestingu á því að um alvarlegt mein væri að ræða.

Mikilvægt að finna það fallega í litlu hlutunum

Baráttan reyndist fjölskyldunni þung, bæði andlega og fjárhagslega, og á lokametrunum kom Dagný sjálf að skipulagningu eigin útfarar. Í síðasta viðtali sínu á Vísi, sem birtist tæpum sólarhring áður en hún lést, lagði hún áherslu á ríkt þakklæti gagnvart öllum þeim sem sýnt höfðu fjölskyldunni stuðning.

Hún skildi eftir sig mikilvæg skilaboð til samfélagsins um lífsgildi og mikilvægi þess að hægja á sér:

„Mig langar að minna fólk á að finna það fallega í litlu hlutunum. Lífið getur ekki snúist endalaust um hraða þannig að maður gleymi að njóta þess. Það er svo mikilvægt að staldra aðeins við.“

Fyrir þá sem vilja sýna fjölskyldunni stuðning á þessum erfiðu tímum er opinn söfnunarreikningur á nafni Kristins Bjarka Hjaltasonar, eiginmanns Dagnýjar:

  • Kennitala: 160183-5439
  • Bankanúmer: 0702-15-835439
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Japanir kepptu í svefni
Heimur

Japanir kepptu í svefni

„Þetta var skemmtileg keppni“
Yfirmaður bresku leyniþjónustunnar varar við nýrri öld ógnar
Heimur

Yfirmaður bresku leyniþjónustunnar varar við nýrri öld ógnar

Sjúklingi ekið 180 kílómetra í ranga átt frá heimili sínu
Heimur

Sjúklingi ekið 180 kílómetra í ranga átt frá heimili sínu

Karen segir innflytjendur gerða að blórabögglum í Frakklandi
Innlent

Karen segir innflytjendur gerða að blórabögglum í Frakklandi

Salmonella greindist í innfluttu kryddi
Innlent

Salmonella greindist í innfluttu kryddi

„Menn gera það ekki í fjandskap við stjórnvöld“
Pólitík

„Menn gera það ekki í fjandskap við stjórnvöld“

Hlutverkabreytingar innan Viðreisnar
Pólitík

Hlutverkabreytingar innan Viðreisnar

Heimsþekktir kizomba-dansarar kenna á Íslandi í október
Myndband
Menning

Heimsþekktir kizomba-dansarar kenna á Íslandi í október

Fyrirtæki sem eiginmaður Kristrúnar á hlut í tapar tugum milljóna
Peningar

Fyrirtæki sem eiginmaður Kristrúnar á hlut í tapar tugum milljóna

Horfði á klám í háloftunum og lét þar ekki staðar numið
Heimur

Horfði á klám í háloftunum og lét þar ekki staðar numið

Lögregla leitar konu sem ók á barn og flúði vettvang
Innlent

Lögregla leitar konu sem ók á barn og flúði vettvang

Breskum verðlaunablaðamanni meinaður aðgangur að Ísrael
Heimur

Breskum verðlaunablaðamanni meinaður aðgangur að Ísrael

Tvöfalt líf kennara komst upp og kostaði hana starfið
Heimur

Tvöfalt líf kennara komst upp og kostaði hana starfið

Minning

Tveir látnir eftir árekstur á Austur­landi
Minning

Tveir látnir eftir árekstur á Austur­landi

Dagný Ósk Vestmann er látin
Minning

Dagný Ósk Vestmann er látin

Flosi Kristinsson er fallinn frá
Minning

Flosi Kristinsson er fallinn frá

Sigurður Hafstein er fallinn frá
Minning

Sigurður Hafstein er fallinn frá

Árni Þór Grétarsson er fallinn frá
Minning

Árni Þór Grétarsson er fallinn frá

Loka auglýsingu