
Í tilkynningu frá handknattleiksdeild Selfoss segir að deildin syrgi nú fallinn félaga, en okkar einstaki vinur og öflugasti sjálfboðaliði, Árni Þór Grétarsson, lést í gær á Sjúkrahúsi Suðurlands eftir snarpa en harða baráttu við krabbamein.
Í orðum handknattleiksdeildarinnar kemur fram að Árni Þór hafi verið óþreytandi stólpi í öllu starfi félagsins. Hann var fastagestur á öllum heimaleikjum meistaraflokka og yngri flokka, þar sem hann sinnti samfélagsmiðlum, myndatökum og tæknimálum fyrir SelfossTV. Sem liðsstjóri, fararstjóri og bílstjóri var hann iðkendum og samstarfsfólki ómetanlegur stuðningur í ferðalögum um árabil, jafnt innan lands sem utan.
Handknattleiksdeildin kveður einstakan öðling með miklu þakklæti fyrir vináttuna og allt hans óeigingjarna starf í þágu félagsins.
Fjölskyldu og nánustu ástvinum Árna Þórs eru færðar innilegar samúðarkveðjur.
Hvíli hann í friði og blessuð sé minning hans.
