1
Minning

Árni Þór Grétarsson er fallinn frá

2
Minning

Dagný Ósk Vestmann er látin

3
Innlent

Reykjavíkurborg segir upp 15 leigusamningum við listafólk á sama tíma

4
Innlent

Eiríkur sjúkraþjálfari falsaði færslur og fékk milljónir greiddar

5
Innlent

Íslenskur karlmaður dæmdur fyrir gróft barnaníðsefni í símanum

6
Fólk

Hnísur leika sér fyrir utan 100 milljóna króna hús

7
Innlent

Vildi komast að því hverjir skoðuðu sjúkraskrána

8
Pólitík

Eyjólfur sendir Morgunblaðinu tóninn

9
Heimur

Flaug til Tenerife en var handtekinn við lendingu

10
Innlent

Ökumaður í ólöglegri dvöl framdi tvo aðra glæpi

Til baka

Barnageðlæknir segir trans börn mæta „rangfærslum og vitleysu“

Læknarnir leggja áherslu á að börn undir átján ára aldri fari ekki í kynleiðréttingaraðgerðir hér á land

landspítalinn
Landspítalinn í Fossvogi
Mynd: Landspítalinn

Ragnar Bjarnason, innkirtlalæknir barna, efast um að þeir sem gagnrýna þjónustu við trans börn og ungmenni hafi ávallt hagsmuni barnanna að leiðarljósi. Þetta kom fram í hlaðvarpinu Meiningu á Rás 1 þar sem fjallað var um stöðu hinsegin fólks og starfsemi trans teymis barna og ungmenna.

Ragnar segir reynslu sína af börnum sem glíma við vanlíðan vegna kynvitundar hafa sýnt honum mikilvægi þjónustunnar.

„Ég á bágt með að sjá hvernig það er að vernda hagsmuni þeirra með því að neita þeim um þjónustu sem lætur þeim líða betur,“ segir Ragnar.

Björn Hjálmarsson barnageðlæknir segir ranghugmyndir og fordóma gagnvart trans börnum meðal annars eiga rætur að rekja til þekkingarskorts. Hann segir trans fólk alltaf hafa verið til en aukin réttindi og sýnileiki hafi gert fleirum kleift að tjá kynvitund sína.

„Á skáldlega vísu þá finnst mér eins og trans börnin séu eins og lítil falleg blóm sem eru að opna sig í moldviðri sem er verið að þyrla upp með rangfærslum og vitleysu,“ segir Björn en þeir Ragnar eru báðir læknar í trans teymi barna og unglinga á Landspítalanum

Læknarnir leggja áherslu á að börn undir átján ára aldri fari ekki í kynleiðréttingaraðgerðir hér á landi. Krosshormónar séu í fyrsta lagi gefnir eftir sextán ára aldur og þá að undangengnu ítarlegu mati. Meðal annars sé lagt mat á hvort ungmennið skilji áhrif meðferðarinnar og mögulegar aukaverkanir og geti veitt upplýst samþykki.

Tilvísanir í trans teymi barna náðu hámarki árið 2022 þegar þær voru 60. Í fyrra bárust 57 tilvísanir og 37 hafa borist það sem af er þessu ári.

Björn segir aukinn sýnileika trans barna ekki merki um „faraldur“ heldur endurspegla veruleika sem hafi orðið sýnilegri.

„Alþjóða læknasamfélagið hefur komist að þeirri niðurstöðu að það að vera trans er ekki geðsjúkdómur,“ segir Björn og undirstrikar mikilvægi þess að veita hópnum góða heilbrigðisþjónustu.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Eggjakast í umferðinni olli fjaðrafoki
Innlent

Eggjakast í umferðinni olli fjaðrafoki

„Hvaða fokking dúfusar eru að eggja bíla í Reykjavík?“
Krónan frystir verð til að berjast gegn verðbólgunni
Peningar

Krónan frystir verð til að berjast gegn verðbólgunni

Vitleysingar stefndu sér í lífshættu í Reynisfjöru
Myndband
Landið

Vitleysingar stefndu sér í lífshættu í Reynisfjöru

Lífsstílsvenjan sem gæti hægt á öldrun
Fólk

Lífsstílsvenjan sem gæti hægt á öldrun

Vilja breyta vannýttu svæði á Akureyri í lifandi samfélagsgarð
Landið

Vilja breyta vannýttu svæði á Akureyri í lifandi samfélagsgarð

Réðst á lögreglumann við samkomuhús og hélt áfram í fangaklefanum
Innlent

Réðst á lögreglumann við samkomuhús og hélt áfram í fangaklefanum

Selur 350 milljóna lúxuseign og tekur fasteign upp í
Myndir
Fólk

Selur 350 milljóna lúxuseign og tekur fasteign upp í

Hjólandi vegfarandi varð fyrir bíl
Innlent

Hjólandi vegfarandi varð fyrir bíl

Árni Þór Grétarsson er fallinn frá
Minning

Árni Þór Grétarsson er fallinn frá

Dagný Ósk Vestmann er látin
Minning

Dagný Ósk Vestmann er látin

Reykjavíkurborg segir upp 15 leigusamningum við listafólk á sama tíma
Innlent

Reykjavíkurborg segir upp 15 leigusamningum við listafólk á sama tíma

Innlent

Barnageðlæknir segir trans börn mæta „rangfærslum og vitleysu“
Innlent

Barnageðlæknir segir trans börn mæta „rangfærslum og vitleysu“

Læknarnir leggja áherslu á að börn undir átján ára aldri fari ekki í kynleiðréttingaraðgerðir hér á land
Vildi komast að því hverjir skoðuðu sjúkraskrána
Innlent

Vildi komast að því hverjir skoðuðu sjúkraskrána

Eggjakast í umferðinni olli fjaðrafoki
Innlent

Eggjakast í umferðinni olli fjaðrafoki

Réðst á lögreglumann við samkomuhús og hélt áfram í fangaklefanum
Innlent

Réðst á lögreglumann við samkomuhús og hélt áfram í fangaklefanum

Hjólandi vegfarandi varð fyrir bíl
Innlent

Hjólandi vegfarandi varð fyrir bíl

Reykjavíkurborg segir upp 15 leigusamningum við listafólk á sama tíma
Innlent

Reykjavíkurborg segir upp 15 leigusamningum við listafólk á sama tíma

Loka auglýsingu