Elín Auður Eyfjörð Ármannsdóttir varð fyrir óskemmtilegri reynslu í umferðinni í Reykjavík þegar eggi var kastað í bifreið hennar úr öðrum bíl. Hún greindi frá atvikinu í Facebook-hópnum Fávitar í umferðinni og birti þar bæði myndskeið af atvikinu og ljósmynd af egginu á bílnum.
„Hvaða fokking dúfusar eru að eggja bíla í Reykjavík? Varð fyrir einum vitleysingi áðan og svo brunaði hann bara í burtu,“ skrifaði Elín og velti því jafnframt fyrir sér hvort um ungmenni hefði verið að ræða.
Færslan vakti talsverð viðbrögð og voru skiptar skoðanir meðal meðlima hópsins á alvarleika málsins.
Karl Ingi hvatti Elínu til að láta þrífa bifreiðina og senda reikninginn á þann sem bæri ábyrgð á eggjakastinu, væri skráningarnúmer bifreiðarinnar þekkt.
Aðrir töldu málið ekki jafn alvarlegt. Bjarni Veigar spurði hvers vegna verið væri að gera „svona stórt mál úr einhverju svona litlu“ og Sveinn Óskar Ragnarsson benti á að hægt væri að þrífa eggið af bílnum.
Elín svaraði þeirri gagnrýni og sagði þrifin sjálf ekki vera aðalatriðið. Hún spurði hvað gerðist ef bifreið yrði fyrir skemmdum og hvort ekki væri eðlilegt að gerandinn bæri kostnaðinn.
Umræðan varð í kjölfarið nokkuð heit. Gunnar Trausti Ingason sagðist sjálfur hafa fengið egg í framrúðu bifreiðar á ferð. Við það hefði hann misst sýn í gegnum rúðuna og sagði hann atvikið hafa getað valdið slysi.
Nokkrir töldu að Elín hefði átt að elta bifreiðina en aðrir gagnrýndu slíkar hugmyndir. Ljóst er þó af umræðunni að atvikið vakti sterk viðbrögð, bæði frá þeim sem töldu eggjakastið hættulegt og óábyrgt og þeim sem töldu viðbrögðin við því ganga of langt.

