Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Hnísur leika sér fyrir utan 100 milljóna króna hús

Húsið var reist árið 2007

Búðartanga 4
Búð­ar­tanga 4

Einbýlishús við Búðar­tanga 4 í Hrísey hefur verið sett á sölu. Húsið er 129,3 fermetrar að stærð, á tveimur hæðum og er sett á 99,9 milljónir króna. Það var reist árið 2007.

Eignin stendur á suður­hluta eyjarinnar og er sérstak­lega bent á stað­setningu hennar og útsýni í sölu­lýsingu. Stór verönd er aftan við húsið og þaðan er víðáttu­mikið sjávar­útsýni. Lóðin er girt og frá henni er hægt að ganga beint niður í fjöru.

Á neðri hæð hússins eru meðal annars forstofa, baðherbergi með sturtu, þvottahús og rúmgott svefn­herbergi. Eldhús, stofa og borðstofa eru í opnu rými og í eldhúsinu er ALNO-innrétting. Úr eldhúsinu er gengið út á grillpall en úr stofunni er útgengt á stóra verönd. Þar er einnig nýr hitaveitu­pottur með sjálf­virkri stýringu.

Á efri hæðinni eru tvö svefn­herbergi, baðherbergi með sturtu og mjög rúmgóð stofa sem einnig getur nýst sem svefnrými. Kvistir til austurs og vesturs hleypa birtu inn í rýmið og þaðan er útsýni meðal annars í átt að Grenivík og Dalvík.

Sjávar­útsýnið er þó eitt af því sem helst vekur athygli í sölu­lýsingunni. Úr gluggum efri hæðarinnar má fylgjast með bátum og snekkjum sigla hjá húsinu. Þá kemur sérstak­lega fram að hnísur sjáist oft leika sér í sjónum fyrir utan húsið, þannig að verðandi eigendur gætu átt von á að fylgjast með sjávar­spendýrunum úr eigin stofu.

„Sjón er sögu ríkari,“ segir að lokum í lýsingu eignarinnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Félagið gerði ekki skriflega ráðningarsamninga og lagði ekki fram vaktaskrár. Dómurinn féllst á kröfur starfsmannanna að fullu.
Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Árið 2022 sagðist hún sjá sig í háskóla og pólitík eftir fimm ár. Nú hefur hún stofnað einkahlutafélag með fjölþættan tilgang.

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“