Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Ökumaður í ólöglegri dvöl framdi tvo aðra glæpi

Hafnarfjörður
Hafn­ar­fjörður Mynd: Hafnarfjarðarbær

Fjöldi ökumanna var stöðvaður vegna gruns um akstur undir áhrifum á höfuð­borgar­svæðinu í gærkvöldi og nótt. Þá var einn maður hand­tekinn eftir líkams­árás og annar ökumaður vistaður í fanga­geymslu vegna meintra fíkniefna og ólöglegrar dvalar hér á landi.

Í Reykjavík stöðvaði lögregla ökumann vegna gruns um ölvunar­akstur. Hann var látinn laus að lokinni blóð­sýnatöku. Í Laugar­dalnum var ökumaður stöðvaður vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna.

Þrír ökumenn voru stöðvaðir í Hafnar­firði vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Tveir þeirra voru látnir lausir að lokinni blóð­sýnatöku en sá þriðji var einnig með meint fíkniefni á sér. Við athugun kom jafnframt í ljós að hann var í ólöglegri dvöl á Íslandi og var hann vistaður í fanga­geymslu lögreglu.

Í Garðabæ var ökumaður stöðvaður vegna gruns um ölvunar­akstur og látinn laus að lokinni blóð­sýnatöku. Þá var ökumaður í Kópavogi stöðvaður vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna.

Lögreglu barst einnig tilkynning um líkams­árás í Breið­holti. Meiðsli voru minni­háttar en einn maður, sem var í annarlegu ástandi, var hand­tekinn og vistaður í fanga­geymslu.

Tveir ökumenn, báðir í Kópavogi, reyndust sviptir ökuréttindum þegar lögregla hafði afskipti af þeim. Málin voru afgreidd með sektum.

Þá var tilkynnt um umferðar­slys í Laugar­dalnum. Engin slys urðu á fólki og var málið afgreitt á vettvangi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Úrskurðarnefnd staðfesti synjun ráðuneytisins þar sem afhending tölvupósts um lokaðan fund gæti grafið undan trausti milli ríkja.
Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag