Sex mótmælendur voru handteknir í bænum Gosport í suðurhluta Englands í gær eftir að mótmæli gegn komu hælisleitenda urðu fjandsamleg í garð lögreglu. Um 200 manns höfðu safnast saman í bænum í þeirri trú að bátur með hælisleitendum væri á leið þangað.
Samkvæmt breskum fjölmiðlum voru nokkrir mótmælenda svartklæddir og með andlit sín hulin. Lögregla segir að sex hafi verið handteknir eftir að hópurinn varð fjandsamlegur í garð lögreglumanna á vettvangi.
Mótmælendur höfðu komið saman vegna báts sem flutti 51 farþega yfir Ermarsund frá Frakklandi. Báturinn kom hins vegar ekki að landi í Gosport heldur í Dover, mun austar á suðurströnd Englands.
Ferðin yfir sundið tók óvenjulangan tíma. Samkvæmt frönskum yfirvöldum höfðu farþegarnir verið meira en 33 klukkustundir á sjó við erfiðar og hættulegar aðstæður en breska sjálfboðaliðastrandgæslan sagði ferðina hafa tekið um 36 klukkustundir.
Frönsk yfirvöld sögðu bátinn illa hæfan til siglingarinnar. Fólkið um borð hefði hins vegar hafnað aðstoð þar sem það væri staðráðið í að komast til Bretlands þrátt fyrir áhættuna.
Aukin gæsla franskra og breskra yfirvalda hefur orðið til þess að fólk sem reynir að komast yfir Ermarsund hefur leitað nýrra leiða. Meðal annars hefur orðið vart við stærri báta og tilraunir til að leggja af stað vestar á frönsku ströndinni, þar sem eftirlit er minna.
Fyrr í september komu hundruð mótmælenda saman í Portsmouth í Hampshire og reyndu að koma í veg fyrir að hælisleitendur, sem komið höfðu yfir Ermarsund á smábátum, kæmust áfram. Yfirvöld óttast að Hampshire, þar sem slíkar komur hafa hingað til verið sjaldgæfar, geti orðið nýr áfangastaður.
Flestir bátanna hafa hingað til komið að landi í Kent, þar sem vegalengdin milli Frakklands og Bretlands er styttri.
Samkvæmt gögnum breska innanríkisráðuneytisins höfðu 17.480 manns komið til Bretlands á smábátum yfir Ermarsund frá áramótum fram á sunnudag. Yfirvöld hafa jafnframt orðið vör við að fleiri farþegar séu að jafnaði um borð í hverjum báti.
Komum yfir Ermarsund fækkaði þó verulega í ágúst. Breska innanríkisráðuneytið sagði í byrjun september að fjöldi slíkra ferða hefði þá verið sá lægsti í ágústmánuði frá því skráningar hófust árið 2018. Flestir sem flytja til Bretlands koma þó til landsins eftir löglegum leiðum, samkvæmt opinberum gögnum.
