1
Fólk

Bjó í Afríku og Asíu til að komast í bestu fíkniefnin

2
Innlent

Draumafríið á Íslandi varð að martröð

3
Heimur

Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin

4
Pólitík

Svanhildur Hólm sat umdeilda ráðstefnu Marco Rubio fyrir hönd Íslands

5
Fólk

15 matvæli sem geta lækkað kortisólmagn

6
Heimur

Handtekinn á flugvellinum á Tenerife eftir átta mánaða leit

7
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

8
Heimur

Robbie Williams útskýrir hvíta efnið í beinni

9
Pólitík

Boða harðari aðgerðir og þyngri refsingar

10
Pólitík

Umdæmisráð barnaverndar heyra sögunni til

Til baka

Réðst harkalega á barnsmóður sína

Maðurinn var einnig dæmdur fyrir að aka ítrekað fullur

Borgarnes 2025 Wiki
Héraðsdómur Vesturlands er í Borgarnesi
Mynd: Wikipedia/Chensiyuan

Ónafngreindur karlmaður hefur verið dæmdur í sjö mánaða óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Vesturlands fyrir fjölda umferðarlagabrota og líkamsárás gegn fyrrverandi sambýliskonu sinni og barnsmóður. Jafnframt var hann sviptur ökurétti ævilangt.

Málið var umfangsmikið og byggði á fjórum ákærum sem sameinaðar voru til meðferðar fyrir dómi. Maðurinn játaði sök samkvæmt öllum ákæruliðum og var því dæmt án frekari sönnunarfærslu.

Samkvæmt dómnum var maðurinn sakfelldur fyrir að hafa ekið undir áhrifum áfengis við fjölmörg tækifæri á árunum 2025 og 2026.

Auk umferðarlagabrotanna var maðurinn fundinn sekur um líkamsárás gegn fyrrverandi sambýliskonu sinni. Samkvæmt ákæru réðst hann á konuna á heimili hennar, sló hana í höfuð og andlit, kýldi hana í búk og dró hana úr rúmi með þeim afleiðingum að hún hlaut mar, bólgur og eymsli víða um líkamann.

Við ákvörðun refsingar leit dómurinn til þess að maðurinn hafði áður hlotið viðurlög fyrir sambærileg umferðarlagabrot. Hins vegar var litið til refsilækkunar að hann játaði brotin skýlaust og hafði leitað sér aðstoðar vegna áfengisvanda síns. Dómurinn taldi engu að síður að ekki væru skilyrði til að skilorðsbinda refsinguna í ljósi ítrekaðra brota hans.

Auk fangelsisrefsingarinnar var manninum gert að greiða rúmlega 1,3 milljónir króna í sakarkostnað og málsvarnarlaun.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Úkraínuher sprengdi „Amazon Rússlands“ í loft upp
Heimur

Úkraínuher sprengdi „Amazon Rússlands“ í loft upp

„Margir munu vakna gjaldþrota í dag.“
Landsliðsmaður í knattspyrnu fjölgar sér
Fólk

Landsliðsmaður í knattspyrnu fjölgar sér

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi
Innlent

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi

Sex manna fjölskylda brennd til bana
Myndband
Heimur

Sex manna fjölskylda brennd til bana

Kerfislægur þrýstingur í eitruðum fjölskyldum
Fólk

Kerfislægur þrýstingur í eitruðum fjölskyldum

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands
Innlent

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin
Heimur

Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin

15 matvæli sem geta lækkað kortisólmagn
Fólk

15 matvæli sem geta lækkað kortisólmagn

Svanhildur Hólm sat umdeilda ráðstefnu Marco Rubio fyrir hönd Íslands
Pólitík

Svanhildur Hólm sat umdeilda ráðstefnu Marco Rubio fyrir hönd Íslands

Draumafríið á Íslandi varð að martröð
Innlent

Draumafríið á Íslandi varð að martröð

Umdæmisráð barnaverndar heyra sögunni til
Pólitík

Umdæmisráð barnaverndar heyra sögunni til

Innlent

Veðurskipti framundan
Innlent

Veðurskipti framundan

Breytingar taka við á fimmtudag
Maðurinn sem féll í Ölfusá er dáinn
Innlent

Maðurinn sem féll í Ölfusá er dáinn

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi
Innlent

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands
Innlent

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

Draumafríið á Íslandi varð að martröð
Innlent

Draumafríið á Íslandi varð að martröð

Loka auglýsingu