1
Landið

Varar við hættu á útsýnispallinum á Bolafjalli

2
Innlent

„Þarna lauk viðskiptasambandi mínu við Krónuna“

3
Innlent

Sannleikurinn á bak við „ódýra“ danska lánið

4
Innlent

„Fólk með milljónir á mánuði veit ekkert hvernig er að lifa með krónunni“

5
Innlent

Snorri Másson hjólar í ESB-sinna

6
Innlent

Líkir ESB-málinu við flutning úr einbýlishúsi í blokk

7
Menning

Leyndu vinnustofurnar í New York

8
Landið

Fyrrum bæjarstjóri Bolungarvíkur segir útsýnispallinn öruggan

9
Innlent

Fjórar líkamsárásir á höfuðborgarsvæðinu í nótt

10
Heimur

Þrjú systkini náðu afburðaárangri í prófum í skugga þjóðarmorðsins á Gaza

Til baka

Lofa langlífi með grískri lífsspeki

Leyndarmál grísku eyjunnar Íkaríu og listin að hægja á sér

Félagsleg tengsl
Með því að endurskipuleggja forgangsröðunina og læra að njóta ferðalagsins sjálfs, í stað þess að einblína eingöngu á áfangastaðinn, má draga verulega úr streitu og auka lífsgæði til langs tíma.
Mynd: Unsplash/Helena Lopes

Gríska eyjan Íkaría hefur vakið vaxandi athygli fólks á heimsvísu fyrir óvenjulegan lífsstíl íbúa sinna en þar nær tæplega þriðjungur fólks níræðisaldri. Leyndarmálið á bak við langlífi liggur ekki síst í lífsspeki sem felst í því að forðast streitu og lifa í núinu. Sérfræðingar telja að nútímafólk í hinu hraða vestræna samfélagi geti lært margt af eyjaskeggjum til að bæta eigin heilsu.

Íkaría telst til einna af fimm svokölluðum „bláum svæðum“ (e. blue zones) á jörðinni. Hugtakið er notað yfir afmörkuð svæði þar sem lífslíkur eru sögð óvenju háar og hlutfall fólks sem nær 100 ára aldri eða eldri er með því hæsta sem gerist. Á Íkaríu lifa um 30 prósent íbúa fram yfir nírætt, sem er margfalt hærra hlutfall en gengur og gerist í flestum öðrum vestrænum ríkjum.

„Hægt og rólega“ er lykillinn að lífinu

Kjarninn í lífsstíl Íkaríubúa felst í ákveðnu slagorði: siga siga (σιγά-σιγά), sem leggur áherslu á að gera hlutina „hægt og rólega“ eða „jafnt og þétt“.

Á eyjunni er mikil áhersla lögð á mannleg samskipti, samveru og þá ánægju sem felst í því að sinna verkefnum dagsins án þess að finna fyrir tímapressu. Að gera eitthvað í flýti er almennt litið hornauga og jafnvel álitinn merki um vanvirðingu gagnvart náunganum. Eyjaskeggjar leggja ríka áherslu á að verja tíma með ástvinum og tryggja að verk séu unnin af kostgæfni fremur en flýti. Viðhorfið er einfalt: Tíminn er dýrmætur og honum á að eyða í að njóta líðandi stundar.

Ofgnótt áreitis í nútímasamfélagi

Fyrir fólk í hröðu hversdagslífi nútímans getur reynst erfitt að tileinka sér siga siga nálgunina. María Cordón, heilsusálfræðingur, bendir á þetta í samtali við tímaritið BreskaVogue. Hún segir að nútímafólk sé orðið svo vant stöðugu áreiti að það nái sjaldnast að slaka á. Við notum snjalltæki á meðan við göngum, eldum eða horfum á sjónvarpið.

„Við erum á of mörgum stöðum í einu,“ segir Cordón og bætir við að svokölluð „athygli-naumhyggja“ (e. attention-based minimalism) sé áhrifarík leið til að breyta þessu munstri.

Smáar breytingar með miklum árangri

Að sögn Cordón þarf ekki stórvægilegar lífsstílsbreytingar til að fylgja fordæmi Íkaríubúa. Hún mælir með því að byrja á einfaldri tiltekt í eigin lífi:

  • Stafræn tiltekt: Skoðaðu hvaða öpp í símanum þú notar raunverulega og eyddu þeim sem þjóna engum tilgangi en ræna athygli þinni.
  • Settu mörk: Lærðu að segja nei við boðum eða verkefnum sem þú samþykkir eingöngu vegna skyldurækni en veita þér enga ánægju.
  • Sjálfsskoðun: Taktu þér augnablik til að spyrja þig hverjar raunverulegar væntingar þínar til lífsins eru og hvað það er í umhverfi þínu sem tekur pláss án þess að gefa lífinu gildi.

Með því að endurskipuleggja forgangsröðunina og læra að njóta ferðalagsins sjálfs, í stað þess að einblína eingöngu á áfangastaðinn, má draga verulega úr streitu og auka lífsgæði til langs tíma.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Sopranos leikarinn Vincent Pastore látinn
Heimur

Sopranos leikarinn Vincent Pastore látinn

„Fyrir umheiminn verður hann ávallt hinn ógleymanlegi „Big Pussy“, en fyrir okkur sem þekktum hann var hann svo miklu meira.“
Þrjú systkini náðu afburðaárangri í prófum í skugga þjóðarmorðsins á Gaza
Heimur

Þrjú systkini náðu afburðaárangri í prófum í skugga þjóðarmorðsins á Gaza

Fyrrum bæjarstjóri Bolungarvíkur segir útsýnispallinn öruggan
Landið

Fyrrum bæjarstjóri Bolungarvíkur segir útsýnispallinn öruggan

Fjórar líkamsárásir á höfuðborgarsvæðinu í nótt
Innlent

Fjórar líkamsárásir á höfuðborgarsvæðinu í nótt

Varar við hættu á útsýnispallinum á Bolafjalli
Landið

Varar við hættu á útsýnispallinum á Bolafjalli

Leyndu vinnustofurnar í New York
Myndir
Menning

Leyndu vinnustofurnar í New York

Líkir ESB-málinu við flutning úr einbýlishúsi í blokk
Innlent

Líkir ESB-málinu við flutning úr einbýlishúsi í blokk

„Fólk með milljónir á mánuði veit ekkert hvernig er að lifa með krónunni“
Innlent

„Fólk með milljónir á mánuði veit ekkert hvernig er að lifa með krónunni“

Sannleikurinn á bak við „ódýra“ danska lánið
Myndband
Innlent

Sannleikurinn á bak við „ódýra“ danska lánið

Snorri Másson hjólar í ESB-sinna
Innlent

Snorri Másson hjólar í ESB-sinna

„Þarna lauk viðskiptasambandi mínu við Krónuna“
Innlent

„Þarna lauk viðskiptasambandi mínu við Krónuna“

Ólafur Haukur segir Bandaríkin ekki hafa lært af fyrri stríðum
Pólitík

Ólafur Haukur segir Bandaríkin ekki hafa lært af fyrri stríðum

Ný tegund apakattar uppgötvuð í regnskógum Kongó
Heimur

Ný tegund apakattar uppgötvuð í regnskógum Kongó

Fólk

Edda Björgvins heldur uppi stuðinu í miðbænum
Myndband
Fólk

Edda Björgvins heldur uppi stuðinu í miðbænum

Stuð í sólinni
Pálmi Gestsson gagnrýnir „flissara“ á Facebook
Fólk

Pálmi Gestsson gagnrýnir „flissara“ á Facebook

Fimm duldar ástæður fyrir því að þú laðast alltaf að röngu fólki
Fólk

Fimm duldar ástæður fyrir því að þú laðast alltaf að röngu fólki

María ræðir ferilinn, barnsmissinn og uppgjörið við fortíðina
Fólk

María ræðir ferilinn, barnsmissinn og uppgjörið við fortíðina

Tíu hagnýt ráð gegn vanvirðingu
Fólk

Tíu hagnýt ráð gegn vanvirðingu

Loka auglýsingu